TSÍ Íslandsmót Liðakeppni 2020

Hér er mótskrá og upplýsingar varðandi TSÍ Íslandsmót Liðakeppni 2020.

Íslandsmót Liðakeppni TSÍ 2020
29. júní – 11. júlí
29. júní – 4. júlí, barna-unglinga-öðlingar
6.-11. júlí meistaraflokkur
Tennisvellir Víkings
Traðarland 1, 108 Reykjavík

MÓTASKRÁ
+50
+40
+30
U18
U16
U14 kk
U14 kvk
U12
U10
Mini Tennis

Leikmannaskrá – https://www.tournamentsoftware.com/sport/players.aspx?id=C0B82154-2DB8-45F4-B81E-51D0DCBE3162

 

Meistaraflokkur / U18 / +30
Tvíliðaleikur – einn leikur uppí 9 lotur án forskots (oddalota 8-8)
Einliðaleikur – tveir leikir samtals, tvö sett án forskots, 3 sett oddalota uppí 10 stig

U16 / U14 / U12 / +40 / +50
Tvíliðaleikur – einn leikur uppí 9 lotur án forskots (oddalota 8-8)
Einliðaleikur – tveir leikir samtals, uppí 9 lotur án forskots (oddalota 8-8)

U10
Tvíliðaleikur – einn leikur uppí 6 lotur án forskots (oddalota 5-5)
Einliðaleikur – fjórir leikir samtals, hver leikur uppí 6 lotur án forskots (oddalota 5-5)

Mini tennis
Tvíliðaleikur – einn leikur uppí 5 lotur án forskots
Einliðaleikur – fjórir leikir samtals, hver leikur uppí 5 lotur án forskots

Lokahóf verður eftir síðasta leikinn í meistaraflokk við Tennisvelli Víkings. Það verða veitt verðlaunum fyrir 1., 2. og 3. sæti í hverjum flokki fyrir sig. Í þeim tilfellum að keppt verður í riðlakeppni, þá fær liðið eitt stig fyrir hvern sigur. Sæti þeirra í lok mótsins ræðst eftir hversu mörg stig liðið fær. Ef tvö lið verða jöfn að stigum í riðlakeppni ræður innbyrðis viðureign. Ef þrjú eða fleiri lið verða jöfn að stigum þá ræðst sæti þeirra eftirfarandi – i) lið sem keppti ekki alla leikina sína verður sjálfkrafa úr leik; ii) hæsta hlutfall af leikum unnið; iii) hæsta hlutfall af settum unnið; iv) hæsta hlutfall af lotum unnið.