Styrkur vegna afreksverkefna á eigin vegum vegna ársins 2019

Samkvæmt fjárhagsáætlun TSÍ 2019, sem samþykkt var á Ársþingi sambandsins í maí s.l., verður 800.000 kr. ráðstafað til einstaklinga vegna afreksverkefna á eigin vegum á árinu 2019.

Umsókn um styrk vegna afreksverkefna á eigin vegum skal skilað til stjórnar Tennissambands Íslands á netfangið stjorn@tennissamband.is.

Skilafrestur umsókna er til og með 15. desember 2019.

Umsóknin skal ekki vera lengri en ein blaðsíða og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

Nafn, kennitölu, símanúmer og heimilisfang umsækjanda

Banka upplýsingar

Upplýsingar um mót sem umsækjandi tók þátt í á árinu og hyggst taka þátt í til loka ársins

    • Nafn móts og styrkleiki þess
    • Staðsetning
    • Tímasetning
    • Kostnaður

Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill taka fram

Upphæð styrks sem sótt er um

Úrvinnsla umsókna verður unnin af stjórn og niðurstaða tilkynnt umsækjendum strax á nýju ári.