Íslandsmót Liðakeppni TSÍ – Meistaraflokkur

Tennisdeild Víkings og Tennisfélag Kópavogs (TFK) unnu meistaraflokks titlana í dag.

Þær Anna Soffía Grönholm og Selma Dagmar Óskarsdóttir (TFK) unnu Evu Diljá Arnþórsdóttur og Rán Christer 3-0. Í tvíliða hafði TFK betur gegn Víking 9-4 og í einliða vann Anna Soffía á móti Rán 6-1, 6-1 á meðan Selma Dagmar sigraði Evu Diljá 6-0, 6-1.

Karla lið Tennisdeild Víkings hafði betur gegn Hafna- og Mjúkboltafélagi Reykjavíkur, líka 3-0, í úrslitaleiknum. Björgvin Atli Júlíusson og Raj K. Bonifacius unnu Erik Larsson og Rares Hidi 9-1 í tvíliðaleik. Í einliðaleik, vann Björgvin gegn Rares 6-0, 6-0 og Raj á móti Erik 6-2, 6-0. Í þriðju sæti voru Tennisdeild Fjölnis (Ólafur Helgi Jónsson, Egill G. Egilsson, Harry Williams og Óttar Úlrik Ragnarsson). Meira upplýsingar um keppnina er hægt að finna hér – http://www.tournamentsoftware.com/sport/draws.aspx…