Íslandsmót Innanhúss – 19.-24. mars 2018

Tennishöllin í Kópavogi

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • Barna- og unglingaflokkar  Mini tennis, 10, 12, 14, 16, 18 ára og yngri. einliða- og tvíliðaleikur
  • Meistaraflokkur karla og kvenna. Einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
  • Öðlingaflokkar 30, 40, 50 og 60 ára og eldri. Einliða- og tvíliðaleikur

Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Vinsamlegast athugið að hámarks þáttaka eru (3) einliðaleiksflokkar og (2) tvíliða-tvenndarflokkar

Skráningu (og afskráningu) lýkur föstudaginn, 15. mars  kl. 18:00

Mótskrá verður svo birt á www.tennissamband.is  17. mars

Þátttökugjald:

  • Barnaflokkar:  Einliðaleikur  3.000 kr.;   Tvíliðaleikur  1.500 kr./mann
  • Aðrir flokkar:  Einliðaleikur   4.000 kr.;  Tvíliða/Tvenndarleikur  2.500 kr./mann

Mótstjórar eru  Raj K. Bonifacius s. 820-0825 og Grímur Emilsson s.659-9474


Stundvísi reglur

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímanlega fyrir leiki sína. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

  • 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
  • 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
  • 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
  • 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.