Jóla-Bikarmót TSÍ 2018!

Tennishöllin í Kópavogi

17.-22. desember og 27.-30. desember

Barna- og unglingaflokkar (17.-22. desember)

ITN, öðlinga,  byrjendaflokkar & tvíliðaleikur (27.-30. desember)

Mini Tennis verður mánudaginn, 17.desember kl.17-18.30

Keppt verður í Mini Tennis, U10, U12, U14, U16, U18, ITN, +30, +40 og byrjendur Í einliðaleik og U14, U18  og ITN í tvíliðaleik. Öll börn í mini tennis og U10 fá þátttöku verðlaun.

Mótsgjöld – 2.000 kr (tvíliða/mann), 2.500 kr. (Mini Tennis), 3.000 kr. (barna- og unglingaflokkar), 4.000 kr. (ITN, öðlingar og byrjendaflokkar)

Vinsamlegast skrá ykkur hér fyrir neðan.

Skráning og afskráningadagur er 14. desember kl. 18 fyrir barna-unglingaflokkar og 21. desember kl.18 fyrir fullorðna.

 

Lokahóf verður í framhaldi af síðasta leik mótsins í Tennishöllinni, 30. desember, kl. 18. 

Mótstjórar – Andri Jónsson s. 866-4578 og Grímur s.659-9474 (ITN, öðlinga og byrjenda flokkar), Raj  s.820-0825 (Barna- og unglingar)

Stundvísireglur

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímanlega fyrir leiki sína. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

1 mínúta of seint = tapar 1 lotu

6 mínútum of seint = tapar 2 lotum

11 mínútum of seint = tapar 3 lotum

16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.