Fed Cup 2018 – Staðfesting á verkefni

Stjórn Tennissambands Íslands staðfestir hér með þátttakendur í eftirfarandi verkefni:

Verkefni: Fed Cup Europe / Africa Zone group III
Dagsetning: 16. – 23.april 2018
Staðsetning: Túnis, Túnis
Tennis spilarar: Hera Björk Brynjarsdóttir, Anna Soffía Grönholm, Sofia Sóley Jónasdóttir, Íris Staub
Þjálfari / Fararstjóri: Jón Axel Jónsson
Varamenn: Rán Christer, Selma Óskarsdóttir, Sara Lind Þorsteinsdóttir

Í viðhengi má finna bæði reglur og leiðbeiningar vegna verkefna á vegum TSÍ ásamt Fed Cup upplýsingaskjali.

Ný lög ÍSÍ um lyfjamál tóku gildi 1. janúar 2015. Lögin eru til samræmis við uppfærðar Alþjóða lyfjareglur sem tóku gildi á sama tíma.Íþróttamenn eða aðrir einstaklingar eru ábyrgir fyrir að vita hvað telst brot á lyfjareglum og vita hvaða efni og aðferðir eru á bannlistanum.

Tennisspilarar, farastjórar og þjálfarar sem taka þátt í verkefnum á vegum TSÍ hvort heldur er innanlands eða á alþjóðavettvangi, mega eiga von á að vera boðaðir í lyfjapróf hvar og hvenær sem er.

Stjórnin óskar þátttakendum góðrar ferðar og góðs gengis.

Fyrir hönd Tennissambands Íslands,
Jón-Axel Jónsson

Verkefni á vegum TSÍ 2016

Fed Cup EA III 2018 – Fact Sheet – Tunisia