Ársþing Tennissamband Íslands 13. mars 2017

Ársþing Tennissambands Íslands verður haldið mánudaginn 13. mars í E sal ÍSÍ í Laugardalnum á 3.hæð kl. 18:00.

Vonast er eftir góðri mætingu á þessu 30. afmælisári TSÍ.

Dagskrá:

1. Þingsetning kl. 18:00.

2. Kosnir fastir starfsmenn þingsins.

3. Kosnar fastar nefndir:

a) 3 menn í kjörbréfanefnd.
b) 3 menn í fjárhagsnefnd.
c) 3 menn í laga- og leikreglnanefnd.
d) 3 menn í allsherjarnefnd.
e) 3 menn í kjörnefnd.

4. Skýrsla stjórnar og fundargerð síðasta ársþings.

5. Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til samþykktar.

6. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.

7. Lagðar fram tillögur um laga- og leikreglnabreytingar ef fram koma.

8. Umræður um tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar.

Þinghlé/ veitingar

9. Nefndarálit um tillögur lögð fram og atkvæðagreiðslur um þær.

10. Önnur mál.

11. Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna reikninga og fulltrúa á íþróttaþing.

12. Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.

13. Þingslit.