28.ársþingi TSÍ lokið – Ásta kjörin nýr formaður

Ásta Kristjánsdóttir er nýr formaður TSÍ

Ásta Kristjánsdóttir er nýr formaður TSÍ

28.ársþing TSÍ fór fram í íþróttamiðstöðinni Laugardal 20.apríl síðastliðinn. Helgi Þór Jónsson gaf ekki kost á sér áfram sem formaður Tennissamband Íslands eftir að hafa sinnt því hlutverki með miklum sóma síðastliðin 5 ár eða frá 19.apríl 2011.

Ásta Kristjánsdóttir var kjörin nýr formaður TSÍ en hún hefur setið í stjórn síðastliðin 3 ár sem meðstjórnandi. Berglind Bragadóttir og Raj K. Bonifacius koma ný inn í stjórn en Raj hefur verið í varastjórn síðastliðin 5 ár. Berglind var sjálfkjörin til tveggja ára og Raj til eins árs. Bragi Leifur Hauksson var sjálfkjörin áfram í stjórn til tveggja ára. Fyrir sitja í stjórn Gunnar Þór Finnbjörnsson og Ásta Kristjánsdóttir sem var kjörin formaður. Kosin voru áfram í varastjórn Jónas Páll Björnsson og Carola Frank auk þess sem Rut Ólafsdóttir kom ný inn og voru þau öll sjálfskjörin.

Á þinginu var afreksstefna TSÍ samþykkt. Margir komu að vinnslu hennar og inniheldur hún skammtíma og langtíma markmið fyrir sambandið, afreksfólk og félög undir sambandinu. Stefnan veitir ramma og leiðsögn til athafna en gefur einnig skilaboð um aukið gegnsæi og jafnrétti í vinnu sambandsins. Afreksstefnan undirstrikar þörfina fyrir bætta aðstöðu til iðkunar á tennis á Íslandi og tóku þátttakendur þingsins undir mikilvægi þess.

Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ var fulltrúi ÍSÍ á þinginu en hann var einnig þingforseti.  Helgi Þór, fráfarandi formaður sambandsins, var sæmdur Gullmerki ÍSÍ fyrir störf hans í þágu tennisíþróttarinnar.