Mótskrá fyrir ITN og fullorðinsflokkar í Jóla- og Bikarmóti TSÍ og Tennishallarinnar

Jólamót Tennishallarinnar og Bikarmót TSÍ hefst á morgun í ITN og fullorðinsflokkum og stendur fram á mánudaginn 30.desember. Búið er að draga í mótið í ITN og fullorðinsflokkum og má sjá mótskrá hér.

Lokahóf – Verðlaunafhending og pizzapartý verður  þriðjudaginn, 30.desember  í Tennishöllinni.
Verðlaun eru veit fyrir fyrstu 3 sæti í aðalkeppni og 1.sæti í B keppni.  Þátttökuverðlaun fyrir alla í Mini Tennis.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa og teygja. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Mótstjóri: Grímur Steinn Emilsson – s.564-4030 netfang:grimur@tennishollin.is