Efnilegustu tennisspilarar ársins

Reglugerð um kjör efnilegasta tennismann ársins og efnilegustu tenniskonu ársins

1.grein
Kosið er um tvo titla, efnilegasti tennismaður ársins og efnilegasta tenniskona ársins. Leikmenn á aldrinum 12-18 ára koma einungis til greina.

2.grein
Allir í stjórn og varastjórn TSÍ hafa atkvæðisrétt ásamt starfandi landsliðsþjálfara/landsliðsþjálfurum. Þeir leikmenn er hljóta flest atkvæði eru valin efnilegasti tennismaður ársins annars vegar og efnilegasta tenniskona ársins hins vegar. Fái tveir eða fleiri leikmenn jafnmörg atkvæði skal stjórn TSÍ skera úr um hvor/hver skuli hljóta titilinn.

3.grein
TSÍ hefur umsjón með kosningunni og sér til þess að allir hlutaðeigandi aðilar fái tækifæri til að kjósa. TSÍ telur atkvæðin og tilkynnir úrslit í lok hvers keppnistímabils.

Samþykkt á stjórnarfundi 12.11.2009