Hástökkvarar og leikjahæstu leikmenn ITN styrkleikalista TSÍ

Leikjahæsti tennisspilari ITN styrkleikalista TSÍ - Hinrik Helgason má sjá fyrir miðju á myndinni

Hástökkvari ITN Styrkleikalista TSÍ - Dagbjartur Helgi Guðmundsson t.v. á myndinni

ITN styrkleikalisti TSÍ hefur verið uppfærður eftir 4.stórmót TSÍ sem var haldið síðustu helgi og má sjá uppfærðan lista hér. Hástökkvari listans er Dagbjartur Helgi Guðmundsson sem fór upp um 46 sæti eða frá því að vera í 244.sæti í 198.sæti.  Hinrik Helgason er leikjahæsti leikmaður ITN styrkleikalistans og hefur spilað 107 leiki frá því að listinn var tekinn í notkun fyrir þremur árum.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista yfir hástökkvara frá 15.ágúst síðastliðnum.

Nr. Nafn Stökk um sæti ITN
1 Dagbjartur Helgi Guðmundsson 46 9,889
2 Ragna Sigurðardóttir 35 8,750
3 Arnaldur Orri Gunnarsson 29 9,657
4 Kári Hrafn Ágústsson 14 9,780
5 Anna Soffía Grönholm 7 9,608
6 Hera Björk Brynjarsdóttir 7 9,676
7 Melkorka Ingibjörg Pálsdóttir 6 10,006
8 Daníel Vilberg Ævarsson 4 10,054
9 Páll Þórhallsson 3 8,105
10 Eysteinn Hrafnkelsson 3 10,097

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista yfir þá leikmenn sem hafa keppt flesta leiki frá því að ITN styrkleikalisti TSÍ var tekinn í notkun fyrir u.þ.b. þremur árum eða í september 2007.

Nr. Nafn Kepptir leikir ITN
1 Hinrik Helgason 107 5,963
2 Hjördís Rósa Guðmundsdóttir 96 8,578
3 Rafn Kumar Bonifacius 84 4,310
4 Vladimir Ristic 83 6,566
5 Óskar Örn Scheving 79 8,901
6 Birkir Gunnarsson 78 3,154
7 Hinrik Snær Guðmundsson 79 8,449
8 Bjarki Sveinsson 63 8,275
9 Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 62 9,876
10 Eirdís Heidur Chen Ragnarsdóttir 62 6,226

Lesa frétt

Íslenskur þjálfari kominn með hæstu þjálfunargráðu í tennis

Jón Axel Jónsson

Jón Axel Jónsson, tennisþjálfari og landsliðsmaður til margra ára lauk í febrúar fyrr á árinu hæstu gráðu sem tennisþjálfari getur hlotið í Bandaríkjunum. Tennissamband Bandaríkjanna og klúbbar þar í landi krefjast þess að allir sem vilja kenna tennis verða að vera með USPTA próf.

Hægt er að fá fjórar mismunandi gráður í þessu prófi sem fer eftir heildarárangri á öllum sviðum (written exam, grip exam, playing test, Group/private lesson & Stroke analysis). Professional 1(P1) er hæsta gráðan á meðan professional 4(P4) er sú lægsta. Jóni Axel tókst að ná P1 sem að felur í sér ævilangan styrk hjá Head tennisvörum og Penn boltum og einnig frían aðgang að hinum ýmsu tennis vefsíðum á netinu. Einnig fá allir sem eru með USPTA prófið tryggingu upp á 9 milljónir dollara, ef að eitthvað slys ætti sér stað á tennisvellinum.

„Ég var búinn að taka ITF þjálfara prófið fyrir nokkrum árum síðan, en þegar ég flutti til Orlando eftir að ég kláraði námið hjá King College í Tennessee þá kom í ljós að það var bara engan veginn nóg til að geta fengið góða þjálfarastöðu, þannig að ég skellti mér bara í þennan pakka sem að var nú reyndar ansi strembinn, sérstaklega Stroke Analysis parturinn og skriflega prófið. Launin úti hjá mörgum klúbbum fara eftir gráðunni þannig að ég bara lærði undir þetta eins og brjálæðingur. Svo er nú reyndar hægt að fá Master Professional gráðu líka, en hún krefst víst a.m.k 20 ára reynslu, mikla góðgerðarstarfsemi, og að sjálfsögðu P1. Kannski maður sæki um það í framtíðinni einhverntímann, þegar ég er orðinn gamall“, sagði Jón Axel.

Lesa frétt

Sandra Dís komin á tennisstyrk hjá bandarísku háskólaliði

Sandra Dís - Íslandsmeistari innan- og utanhúss 2010

Sandra Dís Kristjánsdóttir (19 ára) í Tennisfélagi Kópavogs, hefur nýlega hafið nám við Savannah State University í Georgia-fylki í Bandaríkjunum á íþróttastyrk þar sem hún spilar fyrir tennislið skólans. Sandra Dís er núverandi Íslandsmeistari utanhúss í einliða-, tvíliða- og tvenndaleik. Fréttaritari Tennissambandsins tók Söndru Dís tali.

1. Af hverju ákvaðstu að hefja nám í Bandaríkjanum?
- Alveg frá barnæsku hefur mér fundist það mjög heillandi að fara til Bandaríkjanna og spila tennis. Meðal þess sem heillar mig er tækifærið til að búa erlendis um stund og kynnast annarri menningu. Svo er auðvitað rússínan í pylsuendanum að fá að æfa og keppa tennis á fullu hérna úti. Ég valdi mér nám sem ég taldi að gæti undirbúi mig fyrir læknisfræði.

2. Af hverju varð Savannah State University fyrir valinu?
- Ég var í heimsókn hjá vinkonu minni, Rebekku Pétursdóttur (23 ára), tennisspilara í Fjölni, sem býr hérna úti í sama bæ um árið. Mér leist vel á bæinn og fór með Rebekku að skoða skóla. Við skoðuðum Savannah State og leist mér mjög vel á hann. Í framhaldinu sótti ég um og nú hefur mér hlotnast sá heiður að spila fyrir skólann.

3. Hvernig er tennis- og íþróttaðastaðan við skólann?
- Íþróttaaðstaðan í skólanum er mjög góð. Hér er líkamsrækt, sundlaug, fótboltavöllur og innihöll. Einnig eru hér fjórir harðir vellir (hard court) en við keppum ekki á þeim heldur annars staðar á tennisvöllum í einhverjum garði hérna. Þá er einnig verið að leggja nýja tennisvelli og fyrir fótboltann á næsta ári.

4. Geturðu lýst yfir okkur hvernig keppnisfyrirkomulaginu er háttað?Liðakeppni o.s.frv. Hvenær tímabilið er o.s.frv.
-Keppnistímabilið er á önninni eftir jól þannig að þetta tímabil erum við að æfa. Byrja reyndar ekki á æfingum fyrr en í byrjun september þannig er ekki alveg viss hvernig keppnisfyrirkomulagið er háttað. Læt ykkur vita þegar kemur að því.

5. Hvernig hefur dvölin í Bandaríkjunum lagst í þig hningað til? Hvað er öðruvísi, hvað er svipað?
- Eitt af því sem er öðruvísi er sambland af miklum raka og hita sem er ávallt um 24-36 gráður eftir tíma dags. Fólk er almennt mjög kurteist hérna og úrvalið af búðum er mikið. Síðustu dagana hef ég verið að koma mér fyrir, leigja íbúð og kaupa mína fyrstu bifreið. Eitt af því sem mér þykir mjög óvenjulegt og erfitt að venjast er að gefa þjórfé fyrir allt hvort sem það er á veitingastað eða að fá aðstoð við eitthvað. Svo þykir Ísland almennt öruggari staður en Bandaríkin, löggan er mun sýnilegri hér og þar er auðvitað fjölskyldan og vinirnir.

6. Hvaða ráð getur gefið ungum tennisspilurum sem hafa hug á að feta í fotspor þín og stefna á að spila tennis við bandarískan háskóla
- Mitt ráð er einfaldlega að byrja að æfa og keppa á fullu. Blanda saman æfingum á tennisvellinum og þrekæfingum. Mikilvægt er að æfa reglulega. Æfingin skapar enda meistarann og enginn verður betri af því að sitja upp í sófa, fyrir utan kannski John McEnroe. Þegar það líður svo að háskólanámi að hafa í góðan tíma samband við skóla og sjá hvað gerist. Annað er auðvitað að vera jákvæður og vinna ötullega að markmiðum sínum.

Lesa frétt

Tennisdeild Fjölnis komin með tvo nýja glæsilega útivelli

Tennisdeild Fjölnis er komin með tvo nýja útivelli við Egilshöllina. Vellirnir eru með gervigrasi og voru teknir í notkun nú í sumar. Tennisdeild Fjölnis var áður með 2 löglega malbikaða útivelli og einn ólöglegan malbikaðan völl við íþróttamiðstöðina Dalhúsum. Þeir vellir hafa verið rifnir niður með tilkomu nýrra valla við Egilshöllina.

Hægt er að panta tíma og fá nánari upplýsingar hér.

Lesa frétt