Jade mun bæði vinna í Tennisakademiunni Tennishallarinnar og TFK sem þjálfari og sem mótsspilari nemenda. Jade sem er 22 ára er fyrrum WTA atvinnumaður í tennis og með mikla keppnisreynslu á háu stigi í tennis. Hún var meðal annars númer 1 í Bretlandi 18 ára og yngri, náði á topp 30 unglinga á heimslista Alþjóða tennissambandssins og náði hæst 320 sæti á heimslistanum í tennis í fullorðinsflokki. Jade hefur einnig keppt á öllum Grand slam mótum í unglingaflokki þ.e Wimbledon, US Open, France Open og Australian Open auk þess að keppa í forkeppni Wimbledon í fullorðinsflokki. Koma Jade er sannkallaður hvalreki fyrir íslenskan tennis og eiga margir tennisspilara eftir að njóta góðs af reynslu hennar í sumar.
Í tilefni af 100 ára afmæli ÍSÍ gaf Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands út bók sem ber heitið „Íþróttabókin – ÍSÍ saga og samfélag í 100 ár”. Með útgáfu hennar er leitast við að geyma í senn sögu sambandsins og merka atburði í íslensku íþróttalífi. Ákveðið var að fara nýja leið við upprifjun sögunnar og leggja aðaláhersluna á að fjalla um þau víðtæku áhrif sem íþróttastarfið og íþróttahreyfingin hefur haft á íslenskt samfélag í gegnum tíðina.
Steinar J. Lúðvíksson rithöfundur ritstýrði verkinu. Fáir Íslendingar hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu á starfi íþróttahreyfingarinnar. Til liðs við Steinar voru fengnir nokkrir höfundar sem allir eru kunnir íþróttaáhugamenn, Ellert B. Schram, Ágúst Ásgeirsson, Jón M. Ívarsson, Steinþór Guðbjartsson, Björn Vigni Sigurpálsson og Þorgrím Þráinsson. Í ritnefnd bókarinnar voru Stefán S. Konráðsson formaður, Magnús Oddsson, Jón Gestur Viggósson og Unnur Stefánsdóttir. Jón M. Ívarsson annaðist myndaval og útvegun mynda í bókina. Skönnun mynda var í höndum Brynjars Gunnarssonar ljósmyndara. Prentsmiðjan Oddi sá um umbrot og prentun en Árni Jörgensen var útlitshönnuður bókarinnar.
Bókin er til sölu í Bókabúð Máls og Menningar, Laugavegi 18. í dag, fimmtudaginn 8. mars er hún á íþróttaverði eða 5.900 en venjulegt verð er 7.900 krónur. Við ritun bókarinnar kom í ljós að ekki kæmist allt efnið fyrir í bókinni. Seinna verður það efni aðgengilegt á heimasiðu ÍSÍ.
Raj K. Bonifacius er staddur á ITF Level 2 dómaranámskeiði á Madrid, Spáni. Þar hefur hann öðlast svokallað “white badge” réttindi sem umsjónadómari (tournament referee), stóladómari(chair umpire) og yfirdómari (chief of umpires).
Hann dæmdi tvo leiki á atvinnumannamóti nú um helgina á Spain F41 Futures móti og varð þar með fyrstur Íslendinga til að dæma atvinnumannaleik í tennis.
Iris Staub, einn fremsti tennisspilari Íslands um árabil, hefur verið að gera það gott í Suður-Afríku.
Iris hefur verið búsett í Suður-Afríku síðastliðið hálft ár þar sem hún er í starfsþjálfun hjá þýsku fyrirtæki sem sérhæfir sig i þróunarsamvinnu. Jafnframt því að sinna starfsþjálfuninni hefur hún verið að æfa og keppa í tennis af fullum krafti í Pretoria, þar sem hún keppir fyrir Belgrave Tennisklúbbinn í liðakeppni.
Fyrir nokkru tók Iris þátt á ITF móti 30 ára og eldri. Hún vann fyrstu umferðina en lenti á móti sterkasta leikmanni Suður-Afríku, Lisa Van Der Riet (30 ára og eldri) í annarri umferð. Iris spilaði mjög vel og var leikurinn mjög jafn en hún laut í lægra haldi að lokum.
Eftir þennan leik var Irisi boðið að spila fyrir Norður-Gauteng í keppni á móti hinum héruðunum í Suður-Afriku. Liðakeppnin samanstendur af 3 karlkyns- og 3 kvenkyns tennisspilurum og þarf hver leikmaður að spila tvo leiki á hverjum degi í heila viku. Liðið hennar Irisar vann keppnina með yfirburðum. Hún vann alla sína leiki en Gautengliðið tapaði aðeins einum leik í keppninni. Þar með tryggði Iris og lið hennar sér Suður-Afríska meistaratitillinn.
Iris hefur verið að fikra sig ofar á styrkleikalista 30 ára og eldri í Suður Afríku og er núna númer 10 á Suður-Afríska listanum. Glæsilegur árangur.
Hrvoje Zmajic, framkvæmdastjóri þróunarmála tennis í Evrópu (ITF/Tennis Europe Development Officer), kom hingað til lands 12.-15.september á vegum Tennissamband Íslands.
Búið var að skipuleggja heimsókn Hrovje til hins ýtrasta og koma á fundum með öllum helstu aðilum er koma að tennisíþróttinni á Íslandi.
Hrovje átti góðan fund með stjórn Tennissambandi Íslands þar sem meðal annars var rætt um þróun tennismála á Íslandi. Hann hélt námskeið fyrir tennisþjálfara, fylgdist með þjálfun fjögurra bestu spilara U9 og U13 ára og hvernig ólíkir tennisþjálfarar þjálfa á æfingum í Tennishöllinni.
Hann átti einnig fund með ÍSÍ þar sem rætt var meðal annars um tennisaðstöðu á Íslandi. Auk þess hitti hann fulltrúa frá Háskóla Íslands þar sem ákveðið var að keyra tenniskennslu inn í íþróttadeildina við Háskóla Íslands (Íþróttakennaraskólann á Laugarvatni) fyrir skólaárið 2012-2013. Alþjóða tennissambandið mun útvega 25 tennisspaða, bolta og mini-tennisnet fyrir háskólann ásamt kennsluefninu.
Þessi heimsókn var mjög góð og mun reynsla og þekking Hrovje vafalaust aðstoða Tennissambandið við að byggja upp tennisíþróttina á Íslandi.
Sverrir Bartolozzi fór til Ítalíu í júní þar sem hann stundaði æfingar og tók þátt í tveimur mótum með góðum árangri.
Fyrsta mótið var í Recanati “TTK Warriors Tour 2011″ þar sigraðir Sverrir í 14 ára yngri og komst í úrslit í 16 ára yngri þar sem hann tapaði úrslitaleiknum. Seinna mótið sem hann tók þátt í var í Macerata “Nike Junior Tour 2011″. Þar tók hann þátt í 14 ára yngri og komst í undanúrslit og tapaði naumlega 4-6 6-3 7-5.
“Espergærde Open” mótinu í Danmörku lauk núna síðastliðinn sunnudag með glæsibrag þar sem 5 íslenskir keppendur komust á verðlaunapall.
Sofía Sóley Jónasdóttir sem er einungis 8 ára gömul lenti í öðru sæti í 10 ára og yngri stelpna þar sem hún tapaði 6-2 6-3 í úrslitaleiknum.
Anna Soffía Grönholm tapaði naumlega 7-6 6-2 í úrslitum 12 ára og yngri flokk stelpna.
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir sigraði í 14 ára og yngri flokk stelpna 6-2 6-7 7-6 og einnig í 16 ára og yngri flokk stelpna 6-2 6-2.
Bjarki Sveinsson sigraði Mikael Karlsson 6-2 6-2 í úrslitum b-keppni 16 ára og yngri stráka.
Mótið var partur af þremur mismunandi mótum sem Íslendingar tóku þátt í síðustu tvær vikur.
Köge Sommer Cup endaði í gær með góðum árangri íslensku tenniskrakkana sem eru á keppnisferðalagi í Danmörku.
Anna Soffía Grönholm sigraði 12 ára og yngri flokkinn örugglega gegn Hönnuh Viller Möller í úrslitum 6-2 6-0.
Melkorki I. Pálsdóttir var í öðru sæti í b-keppninni í 12 ára og yngri en hún tapaði fyrir Maja Kirstine Andersson 6-1 6-0 í úrslitaleiknum.
Kári Águstsson tapaði í úrslitaleik b-keppninnar í 14 ára og yngri gegn Carl Frederik Haagen 6-0 6-0.
Íslensku tenniskrakkarnir sem eru við keppni í Danmörku hefur gengið vel á mótunum sem þau taka þátt í. Í dag kepptu krakkarnir á mótum í Espergærde og Köge og áttu góðan dag.
Í mótinu í Köge náðu tveir íslendingar í úrslit í 16 ára og yngri stráka. Hinrik Helgason sigraði félaga sinn úr TFK Bjarka Sveinsson í úrslitum 6-3, 6-2. Glæsilegur árangur hjá Hinriki sem náði einnig í úrslit í mótinu í Værlöse í síðust viku. Þá tapaði hann naumlega fyrir Dana 4-6, 7-5, 7-6 (5) í úrslitaleiknum.
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir 13 ára úr BH sigraði í 14 ára og yngri flokki í mótinu í Espergærde. Hún sigraði Christiane Rahbek í þremur settum. Glæsilegur árangur hjá Hjördísi sem sigraði einnig mótið í Værlöse í síðustu viku.
Anna Soffía Grönholm TFK komst einnig í úrslit í flokki 12 ára og yngri en tapaði þar fyrir Önnu Maria Møller 7-6 (0), 6-1.
Sofía Sóley Jónasdóttir 8 ára úr TFK varð í öðru sæti í 10 ára og yngri flokki stúlkna. Sofia Sóley keppti á móti Elenu Jamshidi sem er 10 ára í úrslitum og tapaði í jöfnum leik. Góður árangur hjá Sofiu Sóley sem er aðeins 8 ára og keppti eingöngu við eldri andstæðinga.
Birkir Gunnarsson, 19 ára landsliðsmaður úr Tennisfélagi Kópavogs hefur verið að keppa og
æfa hjá þýska tennisklúbbnum TA TV Vaihingen undanfarnar vikur. Birkir spilar nr.1 fyrir karlalið 2 hjá félaginu. Margir af bestu tennisspilurum Íslands hafa spilað fyrir þennan klúbb í gegnum tíðina, meðal annars Arnar Sigurðsson, Andri Jónsson og Iris Staub.
Þetta er fyrsta keppnissumar Birkis í Þýskalandi. Liðið hefur keppt við þrjá klúbba í
síðastliðnum mánuði og hefur unnið flesta sína leiki. Síðast spiluðu þeir við TA SV
Böblingen. Birkir sigraði þá Jannis Tomaschko sem er nr.1 spilari þeirra nokkuð örugglega 6-3 6-3. Birkir og Manuel Klempin leikmaður nr. 5 hjá liðinu töpuðu hins vegar naumlega í tvíliðaleik eða, 4-6 4-6.
Gaman verður að fylgjast með Birki á næstunni en hann hyggur á háskólanám í Bandaríkjunum í haust þar sem mun spila fyrir tennislið skólans.
Laugardaginn 2. apríl stendur ÍSÍ fyrir leiðbeinendanámskeiði sem gefur réttindi til kennslu í stafgöngu (skv. stöðlum Alþjóða stafgöngusambandsins).
Námskeiðið verður haldið í fundarsal ÍSÍ í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal og stendur frá kl. 9:00 – 17:00.
Námskeiðið er ætlað fagfólki s.s. íþróttakennurum, sjúkraþjálfurum, hjúkrunarfræðingum, þroskaþjálfum, iðjuþjálfum og læknum.
Námskeiðið er tvíþætt þ.e. núna í apríl (8 tímar) og síðan aftur seinna í vor eða sumar (4 tímar).
Námskeiði er bæði verklegt og bóklegt. Farið verður í undirstöðuatriði stafgöngu, tækni og þjálfunaraðferðir.
Leiðbeinandi er íþróttakennarinn Ásdís Sigurðardóttir.
Námskeiðsgjald er kr. 16.000 og innifalið í því eru öll gögn og kennsla.
Skráning hjá ÍSÍ í síma 514-4000 eða netfang: kristin@isi.is fyrir fimmtudaginn 31. mars.
Í íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði eru tennisæfingar tvisvar í viku undir leiðsögn þjálfarans Axels Péturs Ásgeirssonar. Þar æfa 16 krakkar að staðaldri bæði frá Ólafsfirði og Siglufirði.
Sunnudaginn 21.febrúar síðastliðin kom hinn reynslumikli tennisþjálfari Raj K. Bonifacius og kenndi krökkunum ásamt þjálfara þeirra. Vel var mætt á námskeiðið sem tókst mjög vel.
Raj sem er af bandarískum og indverskum uppruna hefur búið á Íslandi í meira en 18 ár. Þá hefur hann þjálfað bæði karla- og kvennalandslið Íslands í tennis auk þess sem hann er margreyndur landsliðsmaður.
Mánudaginn 21.febrúar mættu Raj og Axel Pétur í tvo íþróttatíma í Íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði og kenndu fleiri krökkum og íþróttkennurum þeirra ýmsar tennisæfingar sem hægt væri að nota í íþróttakennslunni.









