Sandra Dís og Raj Íslandsmeistarar innanhúss

Sandra Dís Kristjánsdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs og Raj Kumar Bonifacius úr Víkingi urðu Íslandsmeistarar innanhúss í meistaraflokki karla og kvenna. Íslandsmótinu lauk á miðvikudaginn en hafði þá staðið þar yfir frá laugardegi. Mjög góð þátttaka var í mótinu eða yfir 120 þátttakendur sem stóðu sig allir með stakasta prýði.

Mótstjórarnir og landsliðsmennirnir Leifur og Andri ásamt nokkrum verðlaunahöfum

Úrslitaleikir í meistaraflokki karla og kvenna voru spilaðir á miðvikudeginum og fjöldi áhorfenda sem lagði leið sína á völlinn.

Raj sigraði Andra Jónsson úr Badmintonfélagi Hafnafjarðar í hörkuspennandi úrslitaleik, í þremur settum 6-0, 4-6 og 7-5. Leikurinn stóð yfir í rúma þrjá tíma og þótti mjög spennandi og skemmtilegur. Raj endurheimti þá Íslandsmeistaratitil sinn innanhúss frá árinu 2008 en Arnar varð Íslandsmeistari innanhúss í fyrra einmitt með sigri á Raj í úrslitaleiknum. Þess má geta að Arnar tók ekki þátt að þessu sinni.

Sandra Dís varði Íslandsmeistaratitil sinn með öruggum sigri á Eirdísi Heiði Chen Ragnarsdóttur úr Fjölni í úrslitaleiknum. Hún vann í tveimur settum, 6-2 og 6-0.

Það voru margir ungir og efnilegar tennisspilarar sem tóku þátt í mótinu. Einn af yngstu keppendunum, Sofia Sóley Jónasdóttir sem er einungis 7 ára að aldri vann mini tennismótið (sem er fyrir 10 ára og yngri). Einnig vann hún 10 ára og yngri stelpur og var í fyrsta sæti í B-keppni 12 ár og yngri stelpur. Mikið efni þar á ferð enda hefur hún ekki langt að sækja hæfileikana þar sem hinn góðkunni Jónas Páll, framkvæmdastjóri Tennishallarinnar, og Mia, tvöfaldur Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna, eru foreldrar hennar. Einnig eru margar efnilegar stelpur sem eru aðeins eldri, eins og Hjördís Rósa Guðmundsdóttir sem vann 12, 14 og 16 ára yngri stelpur þrátt fyrir að vera aðeins 12 ára gömul.

Í strákaflokkunum eru líka margir góðir og efnilegir tennisspilarar eins og Rafn Kumar Bonifacius sem vann bæði 16 og 18 ára og yngri og spilaði einnig í meistaraflokki karla með góðum árangri.

Úrslit úr mótinu má sjá hér.

Þess má geta að enn hefur ekki verið keppt í tvíliða- og tvenndarleik þar sem ekki gafst tími til að halda það á settum tíma vegna mikillar þátttöku í mótinu. Nánari tímasetning verður auglýst síðar.

Mótstjórarnir, Andri Jónsson og Leifur Sigurðarson, voru að vonum ánægðir með mótið sem tókst frábærlega og þakka öllum þeim sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna. Þeir segja að framtíðin sé björt í tennis á Íslandi, margir ungir og efnilegar tennisspilarar á uppleið.

Lesa frétt

Mótskrá fyrir Íslandsmót innanhúss

Íslandsmót innanhúss hefst á laugardaginn, 27.mars.

Búið er að draga í mótið og má sjá mótskrá hér.

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleiki í meistaraflokki karla- og kvenna í einliðaleik sem hefst kl 16:30 miðvikudaginn 31.mars.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja.

Mótstjórar eru Andri Jónsson sími 866-4578 og Leifur Sigurðarsson sími 772-3872.

Lesa frétt

Meistaramót Íslands í tennis verður haldið í janúar 2011

Tennissamband Íslands hefur ákveðið að halda Meistaramót Íslands í tennis. Á þessu móti munu sterkustu tennisspilarar í karla- og kvennaflokki etja kappi. Keppnisfyrirkomulag hefur ekki verið endanlega ákveðið en hugmyndin er að hafa forkeppni og aðalkeppni. Þetta mót mun verða eins konar úrtökumót fyrir karla- og kvennalandslið sem munu keppa á Davis og Fed Cup.

Meistararamót Íslands í tennis verður haldið 2.-6.janúar 2011. Þetta er í þriðja skipti sem Meistaramót Íslands verður haldið en það var síðast haldið árið 1998 og þar áður árið 1995. Þetta mót mun vonandi verða hvatning fyrir alla tennisspilara til að stefna að og er hugsað til að lyfta tennisíþróttinni á Íslandi á hærra plan.

Lesa frétt

Tvö Evrópumót unglinga verða haldin á Íslandi í sumar

Tvö Evrópumót unglinga verða haldin á Íslandi í sumar á vegum Tennissamband Íslands innan Evrópumótaraðar unglinga. Keppt verður í einliða- og tvíliðaleik á báðum mótunum.

Kópavogur Open verður haldið í annað skipti en það var fyrst haldið í fyrra.

Kópavogur Open U14
Forkeppni 29.-30. maí 2010
Aðalkeppni 31.maí – 6. Júní 2010

Þetta er 11.árið í röð sem Icelandic Coca Cola mótið er haldið á Íslandi.

Icelandic Coca Cola Open U16
Forkeppni 5.-6. júní 2010
Aðalkeppni 7.-13. júní 2010

Keppt er bæði í einliða- og tvíliðaleik.

Lesa frétt

Íslandsmót innanhúss 27. – 31.mars 2010

Íslandsmót innanhúss í tennis verður haldið í Tennishöllinni Kópavogi 27.-31. mars næstkomandi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Einliðaleikur

  • Mini tennis (fædd 2000 eða seinna)
  • Strákar/Stelpur 10 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 12 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 14 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 16 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 18 ára og yngri
  • Karla/Kvenna Meistaraflokkur
  • Karlar/Konur 30 ára +
  • Karlar/Konur 40ára +

Tvíliðaleikur

  • Krakkar 14 ára og yngri
  • Krakkar 18 ára og yngri
  • Karla/Kvenna Meistaraflokkur
  • Karlar/Konur 30 ára+
  • Karlar/Konur 40 ára+

Tvenndarleikur

  • Meistaraflokkur
  • 30 ára+

Síðasti skráningardagur er 24.mars. Mótskrá verður svo birt á hér á síðunni.

Eftir úrslitaleiki í meistaraflokki karla og kvenna lýkur verður verðlaunaafhending og veitingar.

Þátttökugjald:
Barnaflokkar: Einliðaleikur 1.000 kr. (mini tennis); 1.500 kr. (aðrir); Tvíliðaleikur 1.000 kr./mann
Aðrir flokkar: Einliðaleikur 2.500 kr; Tvíliða/Tvenndarleikur 1.500 kr./mann

Mótsgjald skal greiða mótstjórum fyrir fyrsta leik.

Mótstjórar:
Andri Jónsson                 866-4578          andrijo@hotmail.com
Leifur Sigurðarsson       772-3872         leifursigurdarson@windowslide.com

Auglýsingu fyrir mótið má sjá hér.

Lesa frétt

Raj og Sandra Dís sigruðu á 2.Stórmóti TSÍ

Mini tennis keppendurnir

2.Stórmóti Tennissambandi Íslands lauk í gær með hörku úrslitaleik karla og frekar fljótum og öruggum sigri í kvennaflokki.

Raj K. Bonifacius úr Tennisfélagi Víkings sýndi enn og aftur styrkleika sinn þegar hann sigraði Andra Jónsson úr Badmintonfélagi Hafnafjarðar í jöfnum leik 6-2, 3-6 og 6-1. Mikil barátta einkenndi leikinn og virkilega flottur tennis þar á ferð. Í undanúrslitum þá sigraði Raj Leif Sigurðarson, sem hefur verið að æfa á fullu eftir að hafa hætt í nokkur ár eftir löng og erfið meiðsli. Leifur átti góðan leik en þurfti samt að játa sig sigraðan 6-2 og 6-4. Andri Jónsson sigraði síðan Rafn Kumar Bonifacius, son hans Raj, í hinum undanúrslitaleiknum 6-2 og 6-2 nokkuð auðveldlega þó að Rafn átti mjög gott mót að baki og hefur sýnt fram á mikla framfarir síðustu vikur og mánuði.

Sigurvegarar á 2.Stórmóti TSÍ í karlaflokki: Andri, Leifur, Rafn Kumar og Raj

Í úrslitum kvenna þá sigraði Sandra Dís Kristjánsdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs Eirdísi Heiði Chen Ragnarsdóttir úr Fjölni örugglega 6-2 og 6-0. Sandra Dís spilaði mjög vel eins og staðan gefur til kynna, þó að Eirdís hafi átt flotta kafla inná milli.

Í mini tennis flokki 10 ára og yngri sigraði Sofia Sóley Jónasdóttir, en hún er einungis 7 ára gömul og mikið efni þar á ferð.

Önnur úrslit má sjá hér fyrir neðan;

ITN Styrkleikaflokkur – einliða

ITN Styrkleikaflokkur – tvíliða

Mótið tókst vel og voru um 85 keppendur sem tóku þátt að þessu sinni, alveg frá 5 ára upp í rúmlega 40 ára.

Næsta mót á vegum Tennissamband Íslands er Íslandsmótið innanhúss sem verður haldið í Tennishöllinni Kópavogi 26.-31.mars næstkomandi.

Lesa frétt

Mótskrá fyrir 2.Stórmót TSÍ 27.feb – 1.mars

2.Stórmót TSÍ hefst á laugardaginn, 27.febrúar. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki.

Mótskrá má sjá hér fyrir neðan:
ITN Styrkleikaflokkur – Einliðaleikur
ITN Styrkleikaflokkur – Tvíliðaleikur

Mini tennismótið fyrir 10 ára og yngri (krakkar fædd 2000 og síðar) verður á mánudaginn, 1.mars og hefst kl 14:30.

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn í einliðaleik sem hefst kl 16:00 á mánudaginn.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja. Mótstjóri er Andri Jónsson sími 866-4578.

Lesa frétt

2. Stórmót TSÍ 27.feb.-1.mars 2010

2. Stórmót TSÍ verður haldið 27. feb- 1. mars næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Mótinu er skipt í þrjá flokka, “Mini Tennis” fyrir þá yngstu (fæddir árið 2000 eða yngri), 10 ára og yngri, og svo “Styrkleikaflokk” fyrir alla aðra.

Markmið með ITN styrkleikaflokknum er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.

Síðasti skráningar (og afskráningar!!) dagur fyrir mótið er 24 .febrúar, kl. 18.00.

Mótskráin verður tilbúin 26.febrúar og hægt verður að nálgast hana á þessari síðu. Einnig er hægt að hringja í mótstjórann Andra Jónsson í síma 866-4578 eða senda honum tölvupóst á netfangið andrijo84@hotmail.com

Þátttökugjald:
Einliðaleikur - 1.000 kr./mini tennis/10 ára; 1.500 kr./fædd f. 1992 og yngri; 2.500 kr./aðra
Tvíliðaleikur - 1.000 kr./f. 1992 og yngri; 1.500 kr./aðra


Lesa frétt

Áskorendakeppnin The best of us challenge – Rafael Nadal

The best of us challenge

Ólympíuhreyfingin stendur fyrir áskorandakeppni sem nefnist The Best of us Challenge. Þar koma fram margir ólympíukappar sem leggja fyrir stutta þraut fyrir aðra til þess að takast á við og reyna að gera betur. Tenniskappinn frægi, Rafael Nadal, er þar með þraut þar sem taka á upp og halda á eins mörgum tennisboltum og hægt er á 30 sekúndum en hann gat haldið á 24 tennisboltum á 30 sekúndum. Þeir sem voru á árshátíð TSÍ í nóvember síðastliðnum kannast við þessa áskorun þar sem fjölmargir öttu kappi við þessa þraut en sjálfur formaður TSÍ Skjöldur Vatnar Björnsson sigraði þrautina með því að halda á 21 tennisboltum (skv. minni vefstjóra +/- 1 tennisbolti).

Þeir sem senda inn sínar tilraunir (teknar upp á video) geta unnið miða á Ólympíuleika ungmenna í Singapore í sumar.

 TSÍ skorar á tennisfólk að prófa  t.d. áskorun Rafael Nadal. Hægt er að nálgast upplýsingar um áskorendakeppnina hér.

Lesa frétt

Íslandsmeistarar seinni ára

Systkynin Arnar og Sigurlaug Sigurðarbörn eru sigursælasta tvenndarleiksparið í gegnum tíðina

Tennissamband Íslands hefur tekið saman Íslandsmeistara frá upphafi í öllum greinum, þ.e. einliða-. tvíliða og tvenndarleik fyrir  karla og konur í meistaraflokki. Hægt er að nálgast þá samantekt hér.

Arnar Sigurðsson úr Tennisfélagi Kópavogs hefur langoftast orðið Íslandsmeistari eða samtals 34 sinnum og 7 sinnum orðið þrefaldur Íslandsmeistari. Næst á eftir honum koma Hrafnhildur Hannesdóttir úr Fjölni með 19 titla, Margrét Svavarsdóttir með 16 titla og Einar Sigurgeirsson með 15 titla.

Sigursælustu tvíliðaleikspörin í gegnum árin eru:

  • Arnar Sigurðsson og Davíð Halldórsson sem hafa unnið 9 titla saman í tvíliðaleik karla
  • Hrafnhildur Hannesdóttir og Stefanía Stefánsdóttir sem hafa unnið 5 titla saman  í tvíliðaleik kvenna
  • Systkynin Arnar og Sigurlaug Sigurðarbörn sem hafa unnið 4 titla saman í tvenndarleik

Einnig hefur verið safnað saman upplýsingum um tenniskonu og tennismann ársins frá upphafi sem má sjá hér.

Lesa frétt

Nýtt unglingalandslið karla hefur verið valið

Rafn Kumar og Hinrik hafa báðir unnið sér inn sæti í unglingalandsliðinu

Keppni um sæti fyrir unglingalandslið karla lauk nú um helgina með frábærri spilamennsku fimm einstaklinga. Rafn Kumar Bonifacius og Kjartan Pálsson kepptu ekki um sæti í þetta sinn vegna þess að þeir hafa sýnt fram á mjög góðan árangur síðasta árið. Það voru margir góðir leikir um helgina, enda mikið í húfi fyrir þessa stráka og var gaman að sjá hvernig þeir ekki bara tókust á við keppnina sjálfa heldur einnig pressuna sem henni fylgdi. Því miður þá þurfti Sverrir Bartolozzi að hætta við keppni vegna meiðsla en er hann samt valinn í landslið eftir ITN styrleikalistanum.

Hinrik Helgason gerði sér lítið fyrir og vann alla leikina sína og tryggði sér þannig sæti í landsliðinu á eftir Rafni Kumar og Kjartani. Fjórði maður sem tapaði einungis einum leik var Ástmundur Kolbeinsson. Þeir báðir spiluðu vel í sínum leikjum og sýndu hvers þeir eru megnugir. Næstir á eftir þeim tveim eru Vladimir Ristic, Luis Gísli Rabello og Hinrik Snær Guðmundsson, en sá síðast nefndi er nýliði í hópnum og hefur hann sýnt miklar framfarir síðustu mánuði. Hér má sjá lista yfir unglingalandslið karla.

Andri Jónson landsliðsþjálfari unglinga var ánægður með sína menn eftir helgina. “Það var gaman að sjá góðan tennis og ólíkan tennis um helgina, enda allir þessir strákar ólíkir spilarar. Ég vona að þeir haldi uppteknum hætti á næstu mótum og sýni enn meiri þrautseigju og hæfni í hverjum einasta leik. Það er til mikils að vinna í hverjum leik hvort sem hann er tapaður eða unninn og alltaf hægt að læra eitthvað nýtt,” segir Andri.

Lesa frétt

Eirdís og Raj sigruðu annað mótið í röð
2010_01_25_1_Stormot_TSI_MFL

F.V. Rafn Kumar, Birkir, Raj, Eirdís og Karítas

Fyrsta stórmóti Tennissambandi Íslands lauk í gær. Nýkrýndir bikarmeistarar Eirdís Heiður Chen Ragnarsdóttir úr Fjölni og Raj K. Bonifacius úr Víkingi sigruðu í karla- og kvennaflokki. Eirdís sigraði Karítas Gunnarsdóttir úr Tennisfélagi Kópavogs 6-2 og 6-1. Raj sigraði Birki Gunnarsson úr Tennisfélagi Kópavogs 6-3 og 6-1. Í þriðja sæti lenti Rafn Kumar Bonifacius úr Víkingi með því að sigra Jónas Pál Björnsson úr Tennisfélagi Kópavogs í hörkuleik 4-6, 6-2, 10-5.

Í tvíliðaleik karla sigruðu Hinrik Helgason og Rafn Kumar Bonifacius feðgana Hjört Scheving og Óskar Örn Scheving 6-2 í úrslitum. Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Anna Soffía Grönhölm og Hjördís Rósa Guðmundsdóttir þær Drífu Sóley Heimisdóttir og Hebu Sólveig Heimisdóttir 6-5 í úrslitaleiknum.

Önnur úrslit má sjá hér fyrir neðan:

ITN Styrkleikaflokkur – einliða

ITN Styrkleikaflokkur – tvíliða

Verðlaunahafa má sjá hér

Myndir af verðlaunahöfum má sjá hér

Lesa frétt