Tilslakanir á takmörkunum

Heilbrigðisráðneytið hefur nú birt frétt um tilskakanir á takmörkunum á samkomum, frá og með 13. janúar nk.  Sá fyrirvari er þó á tilslökunum að faraldurinn þróist ekki á verri veg. Helstu breytingar varðandi íþróttastarfið eru eftirfarandi:

  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.

Frétt stjórnarráðsins er að finna hér.

Fréttinni fylgdi minnisblað sóttvarnarlæknis, dags. 7. janúar 2021.