Hádegisfundur – Afhverju íþróttamælingar?

Föstudaginn 23. mars 2018 kl: 12:10 mun Sveinn Þorgeirsson aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík fara yfir samstarf íþróttafræðisviðs HR og nokkurra sérsambanda innan ÍSÍ. Afhverju að framkvæma mælingar? Hverju eiga þær að skila? Hvað á að gera við gögnin?
Hvernig fer samstarf háskóla og landsliðsþjálfara fram?

Sveinn mun svara þessum spurningum og fleirum ásamt því að fjalla um hvernig mælingarnar fara fram og hvað er verið að mæla.

Hádegisfundurinn verður haldin í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, E – sal, og er opinn öllum meðan húsrúm leyfir.

Aðgangur er ókeypis en vinsamlegast skráið þátttöku með því að smella hér.