2. Stórmót TSÍ: Skráning opin!

2. Stórmót TSÍ verður haldið 24. – 26. mars 2017 í Tennishöllinni Kópavogi.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis”
  • Einliðaleik í barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára & 14 ára
  • Einliðaleik í ITN flokki

ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þann stað sem hann telur vera réttan. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.

Mótsgjald:

Einliðaleikur – 1.500 kr./mini tennis;  2.400 kr./ barna- og unglingaflokkar; 3.500 kr./ ITN

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning: www.tennissamband.is , www.tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudaginn, 20. mars kl. 18. Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzaveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudaginn, 26. mars eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótskrá: Tilbúin 22. mars (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is

2_stormot_auglysing