2. Stórmót TSÍ – 2016

Mótið verður 28.‐30.október 2016 í Tennishöllinni Kópavogi!

Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis” í öllum barna- og unglingaflokkum – föstudaginn, 28.október kl.15.30-16.30
  • Einliðaleik í barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára & 14 ára
  • Einliðaleik í ITN flokki

ITN flokkurinn hentar öllum og fara menn inn í mótið á þeim stað sem passar við þeirra getu. Ef keppandi er ekki á ITN listanum staðsetur mótstjóri keppandann á þeim stað sem hann telur vera réttast. Lágmarkslengd á hverjum leik í ITN flokki verður eitt sett upp í 9 lotur.

Mótsgjald

Einliðaleikur – 1.500 kr./mini tennis; 2.400 kr./ barna- og unglingaflokkar; 3.500 kr./ ITN

Hægt er að greiða mótsgjald fyrir fyrsta leik en ef það er ekki gert verður sendur greiðsluseðill fyrir mótgjaldinu og bætast þá við seðilgjald upp á 295 kr.

Skráning

Skráning hér að neðan og tennis.is eða í netfang tennis@tennis.is

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er mánudaginn, 24. október kl. 18 Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Öllum keppendum er boðið til pizzuveislu og verðlaunaafhendingar á sunnudaginn, 30. október eftir úrslitaleik í ITN flokki.

Mótskrá: Tilbúin 26.október (kemur inná www.tennissamband.is & www.tennis.is )

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825 raj@tennis.is