Íslandsmót innanhúss 23.-27.apríl – Skráning

Íslandsmót innanhúss verður haldið í Tennishöllinni Kópavogi 23.-27.apríl næstkomandi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

  • “Mini Tennis” í öllum barna- og unglingaflokkum – 10 ára, 12 ára, 14 ára, 16 ára & 18 ára
  • Barna- og unglingaflokkar 10, 12, 14, 16, 18 ára og yngri. Einliða- og tvíliðaleikur
  • Meistaraflokkur karla og kvenna. Einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
  • Öðlingaflokkar 30, 40, 50 og 60 ára og eldri. Einliða- og tvíliðaleikur
    Athugið að flokkar verða sameinaðir ef þurfa þykir.

Vinsamlegast athugið að hámarks þátttaka eru (3) einliðaleiksflokkar og (2) tvíliða-tvenndarflokkar.

Keppt verður í mini tennis í öllum flokkum föstudaginn 24.apríl kl 15:30.

Skráningu lýkur mánudaginn, 20.apríl kl. 18:00. Mótskrá verður svo birt hér á síðunni 22.mars.

Þátttökugjald:
Barnaflokkar: Einliðaleikur 1.500 kr. (Míni Tennis); 2.200 kr. aðra; Tvíliðaleikur 1.000 kr./mann
Aðrir flokkar: Einliðaleikur 3.200 kr.; Tvíliða/Tvenndarleikur 2.000 kr./mann

Mótstjóri er Raj Bonifacius s. 820-0825 netfang: tennis@tennis.is

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:

1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og hita upp með því að skokka, sippa, teygja eða slá á móti vegg við útivellina. Upphitunartími fyrir hvern leik er 5 mínútur.

Skráningu í mótið er lokið.

Listi yfir skráða keppendur.