Capital Inn Reykjavik Open U16 verður haldið 6.-14.júní 2015

tennis_europeCapital Inn Reykjavík Open fyrir 16 ára og yngri verður haldið 6.-14.júní næstkomandi. Tennismótið er hluti af Evrópumótaröðinni fyrir 16 ára og yngri. Mótið verður haldið á Tennisvöllum Víkings, Traðarlandi 1 í Fossvoginum.

CAPITAL INN REYKJAVÍK OPEN U16 tennismótið er opið fyrir stráka og stelpur fædd á árunum 1999, 2000, 2001 og 2002. Allir geta keppt bæði í einliða og tvíliðaleik.

Nokkrar leiðbeiningar til að taka þátt í mótinu:
1. Sækja um iPin númer á heimasíðu TennisEurope – www.tenniseurope.org
2. Búa til “tennis europe account”
3.  Skrá sig í mótið

Síðasti skráningadagur er 12.maí.

Spurningar?  Hafðu samband við Raj í síma 820-0825 eða með tölvupósti – tennis@tennis.is