Jóla- og Bikarmót TSÍ

Síðasta mót ársins, Jóla- og Bikarmót TSÍ verður haldið 19-22. desember fyrir börn og unglinga, 27.-30. desember fyrir fullorðna ásamt ITN flokki. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik á mótinu.

Dagana 19-22 desember er keppt í :
Mini tennis, 10-, 12-, 14-, 16-, og 18 ára og yngri.
Mótstjóri: Raj K. Bonifacius – s.820-0825, netfang: raj@tennis.is

Á milli jóla og nýárs, dagana 27-30 desember er keppt í:
ITN flokki sem er fyrir alla. Einnig er keppt í 30+, 40+, 50+, 60+ og í byrjendaflokki og tvenndarleik.
Mótstjóri: Grímur Steinn Emilsson – s.564-4030 netfang: grimur@tennishollin.is

Úrslitaleikur, verðlaunaafhending og pizzapartý. Nánari tímasetning síðar.

Mótsgjöld í fullorðinsflokkum eru:
* Einliðaleikur: 3.000 kr
* Tvíliðaleikur: 2.000 kr

Mótsgjöld í barnaflokkum eru:
* Einliðaleikur: 2.000 kr
* Tvíliðaleikur: 1.500 kr
* Mini tennis: 1.500 kr
* Verð í ITN flokk fyrir börn 16 ára og yngri er 2.000 kr

Skráningu í barna- og unglingaflokka er lokið. Enn er hægt að skrá sig í hina flokkana.

Vinsamlegast skráið ykkur með því að fylla inn í formið hér fyrir neðan. Athugið að mikilvægt er að skoða lista yfir skráða keppendur þegar búið er að skrá sig til að vera viss um að skráning hafi tekist.




Listi yfir skráða keppendur má sjá hér.