Grunnstigs þjálfaranámskeið TSÍ 19.-20 maí 2012

Grunnstigs þjálfaranámskeið Tennissamband Íslands verður haldið 19.-20. maí næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjaveg 6, 104 Reykjavík, 3.hæð salur C og á Tennisvöllum Víkings, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík. Kennari á námskeiðinu er tennisþjálfarinn Raj K. Bonifacius (s.820-0825). Lágmarksaldur á námskeiðið er 13 ára.

Dagskrá námskeiðs:

Laugardaginn, 19.maí, kl. 10-15 (ÍSÍ)
1. Grunnstigsnámskeið
2. Þjálfunaraðferðir í tengsl við nýju U10 tennisreglur
3. kl.12 hlé – Hádegismatur
4. Grunnstigsnámskeið
5. Heimavinnu
Lesefni í Grunnstigsmöppu

Sunnudaginn, 20.maí, kl. 10 – 14 (ÍSÍ)
6. Grunnstigsnámskeið (áfram)
7. kl.12 hlé – Hádegismatur
8. 15 mínútur 2ja – 3ja manna kynning (viðfangsefni: eitt dag í tennisskóla)

Sunnudaginn, 20.maí, kl. 15 – 17 (Tennisvellir Víkings)
9. Verklegt nám inná velli

Í framhaldi skrifa nemendur stutta ritgerð um eftirfarandi efni:
1. 3 valkostir (velja 2)

Grunnstig
a. Hvað felst í fyrstu 5 kennslustundunum?
b. Hvað getur verið hættulegt í tenniskennslu og hvernig getum við komið í
veg fyrir þessa áhættu sem kennarar?
c. Hvað kosti hefur það fyrir tenniskennara að vera skipulagður í kennslu?
2. Ritgerð
a. Má vera handskrifað eða í tölvutæku formi
b. 2 blaðsíður; 1,5 linubil
c. skiladagur 30.júní – senda á ritgerd@tennis.is

Vinsamlegast skráið ykkur með því að fylla út í formið hér fyrir neðan:

Listi yfir skráða má sjá hér.