Mótskrá fyrir Babolat tennismótið

Babolat tennismót TFK og Tennishallarinnar hefst á morgun á Tennisvöllum Kópavogs. Mótskrá má sjá hér.

Lesa frétt

Babolat tennismótið 29.júní – 3.júlí 2011

Babolat tennismótið verður haldið dagana 29.júní – 3.júlí 2011 á Tennisvöllum Kópavogs.

Keppt verður í einliða- og tvíliðaleik í öllum aldursflokkum og notast verður við ITN kerfið í meistaraflokki og geta allir tekið þátt í þeim flokki. Einnig verður keppt í sérstökum forgjafarflokki þar sem í verðlaun verður Pure Drive tennisspaði.

Þátttökugjald:
Fullorðnir: 3.000 kr einliða og 1500 kr tvíliða
Börn: 1500 kr einliða og 1000 kr tvíliða
Mini tennis: 1.000 kr

Síðasti skráningardagur er 27.júní kl. 12:00
Mótskrá verður tilbúin 28.júní kl. 18:00

Lesa frétt

Víkings tennismót 8.-10.júlí 2011

Víkingsmót verður haldið 8.-10.júlí næstkomandi á Tennisvöllum Víkings Traðarlandi 1. Mótinu er skipt í tvo flokka – Mini tennis fyrir yngstu tennisspilarana og ITN Styrkleikaflokk fyrir alla aðra.

Markmið með ITN styrkleikakerfinu er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.

Þátttökugjald:
Einliða:  1.000 kr. mini tennis / 2.000 kr.fædd f. 1993 / 2.500 kr aðrir
Tvíliða:  1.000 kr. fædd f. 1993 / 1.500 kr. aðrir

Skráning á www.tennis.is/skraningar

Síðasti skráningar- (og afskráningar-) dagur fyrir mótið er miðvikudagurinn 6.júlí kl 18:00.

Mótskrá: Tilbúin 7.júlí á www.tennis.is

Mótstjóri: Raj K. Bonifacius s.820-0825, netfang: tennis@tennis.is

Lesa frétt

Miðnæturmót Víkings – 27.júlí 2011

Miðnæturmótið 2008

Miðnæturmót Víkings í tennis verður haldið á Víkingsvöllum miðvikudagskvöldið 27.júlí kl 19:00.

Mótið hentar öllum, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Dregið verður saman í stutta tvíliðaleiki, þannig að með- og mótspilarar eru sjaldan þeir sömu. Í lokin eru allar unnar lotur taldar saman.

Mótsgjald 3.000 kr. Matur og drykkur er innifalið. Bikar, medallíur og tennisvörur frá Wilson í verðlaun.

Skráið ykkur sem fyrst – bara 16 manns komast inn í þessari keppni.

Skráning á tennis.is/skraningar og í síma 820-0825.

Lesa frétt

Iris og Sandra Dís unnu bronsverðlaun í tvíliðaleik

Iris og Sandra Dís eru lengst til vinstri á myndinni

Iris Staub og Sandra Dís Kristjánsdóttir spiluðu á móti Kimberley Cassar og Elena Jetcheva frá Möltu í undanúrslitum tvíliðaleik kvenna á Smáþjóðaleikunum í gær. Maltneskur stelpurnar voru of sterkar fyrir þær íslensku sem töpuðu í tveimur settum 6-1 og 6-2. En þar sem ekki er keppt um þriðja sætið þá unnu Iris og Sandra Dís til bronsverðlauna. Glæsilegur árangur hjá þeim.

Þar með hefur allt íslenska landsliðið lokið þátttöku sinni á Smáþjóðaleikunum í ár. Smáþjóðaleikarnir verða næst haldnir í Lúxemborg 2013 og svo á Íslandi 2015.

Lesa frétt

Iris og Sandra Dís komnar í undanúrslit í tvíliðaleik

Sandra Dís er í fyrsta skipti í undanúrslitum í tvíliðaleik á Smáþjóðaleikunum

Iris Staub og Sandra Dís Kristjánsdóttir komust í dag áfram í undanúrslit í tvíliðaleik kvenna á Smáþjóðaleikunum. Þær sigruðu tvíliðaleikspar frá Andorru nokkuð örugglega 6-1 og 6-2. Þar með eru þær öruggar með bronsverðlaun þar sem ekki er keppt um þriðja sætið. Í undanúrslitum sem fara fram á morgun mæta þær sterku pari frá Möltu.

Arnar Sigurðsson og Birkir Gunnarsson töpuðu á móti tvíliðaleikspari frá Liechtenstein 6-2 6-4. Þar með eru þeir úr leik í tvíliðaleik karla en þeir náðu í bronsverðlaun í þeim flokki á síðustu Smáþjóðaleikum.

Lesa frétt

Arnar og Sandra Dís úr leik í einliðaleik

Arnar Sigurðsson og Sandra Dís Kristjánsdóttir féllu bæði úr leik í einliðaleik á Smáþjóðaleikunum. Þar með er allt íslenska landsliðið fallið úr leik í einliðaleik.

Arnar átti ekki góðan leik í dag og tapaði á móti Matthew Asciack frá Möltu 6-0 6-0 en Arnar hefur unnið hann fjórum til fimm sinnum áður.

Sandra Dís tapaði á móti Louise-Alice Gambarini frá Mónakó 6-1 6-0.

Lesa frétt