Arnar og Iris hársbreidd frá því að komast áfram í tvenndarleik

Arnar Sigurðsson

Arnar Sigurðsson og Iris Staub féllu naumlega úr leik í tvenndarleik á Smáþjóðaleikunum í dag. Þau voru mjög óheppin með dráttinn þar sem þau lentu á móti besta tvenndarparinu í fyrstu umferð. Þau kepptu á móti Claudine Schaul og Mike Vermeer frá Lúxemborg.

Schaul og Vermeer unnu fyrsta settið 6-4. Arnar og Iris komu sterk til baka og unnu næsta settið 6-3. Þriðja settið var súper oddalota sem Arnar og Iris töpuðu 10-4. Gríðarlega mikil vonbrigði fyrir Arnar og Irisi sem voru hársbreidd frá því að komast áfram og hefðu þá að öllum líkindum farið alla leið í úrslitaleikinn þar sem hinir andstæðingarnar voru ekki eins sterkir.

Á morgun spila Iris og Sandra Dís á móti Andorru í tvíliðaleik og með sigri í þeim leik geta þær náð í brons sæti. En þetta verður eflaust erfiður leikur hjá þeim.

Arnar og Birkir mæta Liechtenstein og eiga ágætist möguleika í þeim leik. Ef þeir vinna þann leik komast þeir í undanúrslit og eru öruggir með brons. Arnar og Birkir unnu brons á síðustu Smáþjóðaleikunum í Kýpur árið 2009.

Lesa frétt

Iris og Birkir féllu úr leik í einliðaleik

Iris féll úr leik í dag

Fyrsti keppnisdagur í tennis á Smáþjóðaleikunum fór fram í dag. Iris Staub og Birkir Gunnarsson féllu bæði úr leik í einiliðaleik í dag.

Iris tapaði 6-1 6-1 á móti Elenu Jetcheva frá Möltu. Iris átti góðan leik gegn Elenu og náði upp ágætis spili en andstæðingurinn var einfaldlega of sterkur fyrir hana.

Birkir spilaði á móti Nick Camelliri frá Möltu og tapaði í tveimur settum 6-2 og 6-2.

Arnar Sigurðsson og Sandra Dís Kristjánsdóttir keppa í fyrstu umferð í einliðaleik á morgun. Arnar mætir Matthew Asciak frá Möltu. Asciak sem er númer 1789 í heiminum og sigraði Andra Jónsson 6-2 6-1 á Davis Cup í síðasta mánuði þegar Ísland mætti Möltu. Sandra Dís mætir Louise-Alice Gambarini frá Mónakó.

Lesa frétt

Skemmtimót Þróttar 2.júní 2011 uppstigningardag

Skemmtimót verður haldið á tennisvöllum Þróttar á fimmtudaginn kemur, 2. júní.

Spilaðir eru stuttir tvíliðaleikir og skipt oft um meðspilara og mótherja. Unnar lotur hvers og eins eru taldar saman í lokin, en aðalatriðið að vera með. Allir eru hvattir til
að vera með, jafnt byrjendur sem lengra komnir og ungir sem aldnir!

Í hádeginu er boðið upp á hressingu.

Mótið er öllum opið, mótsgjald er 1.000 kr. en frítt fyrir þá sem hafa greitt félagsgjöld hjá Þrótti.

Mótsstýra er Steinunn Garðarsdóttir og mælst er til að þátttaka sé tilkynnt til hennar, á netfangið steinunn76@hotmail.com

Lesa frétt

Íslenska landsliðið komið til Liechtenstein á Smáþjóðaleikana

14. Smáþjóðaleikar Evrópu hefjast í dag í Liechtenstein og stendur keppnin fram á laugardag. Keppt er í 10 íþróttagreinum að þessu sinni og þar á meðal tennis. Keppt er í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik en þetta er í fyrsta sinn í sögu Smáþjóðaleikanna sem keppt er í tvenndarleik í tennis. Íslenska landsliðið skipa: Arnar Sigurðsson, Birkir Gunnarsson, Iris Staub og Sandra Dís Kristjánsdóttir.

Íslenska landsliðið kom til Liechtenstein kl 22 í gærkveldi að staðartíma.Keppni í tennis hefst á morgun og mun landsliðið nýta daginn í dag til æfinga. Í kvöld kl 20 að staðartíma fer fram setningarhátíð leikanna á Rheinparkstadion í Vaduz í Liechtenstein.

Heimasíða leikanna má sjá hér.

Lesa frétt

Mótaröð sumarsins

Nú er sumartímabilið í tennis að hefjast og tennisklúbbarnir farnir að opna útivelli sína. TSÍ mun halda Íslandsmót utanhúss í ágúst auk þess sem það mun halda tvö Evrópumót í byrjun júní. Einnig munu nokkrir tennisklúbbar halda mót í sumar á sínum útivöllum.

Mótaröð sumarsins:

Evrópumót U14 – Kópavogur Open 30.maí – 5.júní 2011
Skemmtimót Þróttar 2.júní 2011
Evrópumót U16 – Icelandic Coca Cola Open 6.-12.júní 2011
Babolat mót TFK og Tennishallarinnar 29.júní – 3.júlí 2011
Víkingsmótið 8.-10.júlí 2011
Opið Stórmót Þróttar og Fjölnis 21.-24.júlí 2011
Íslandsmót utanhúss
- Meistaraflokkur á völlum TFK, 10.-14. ágúst 2011
- Börn og unglingar á völlum Víkings, 16.-21. ágúst 2011
- Öðlingar á völlum Þróttar, 16.-21. ágúst 2011

Lesa frétt

Grunnstigs þjálfaranámskeið TSÍ – 28.-29.maí 2011

Grunnstigs þjálfaranámskeið Tennissamband Íslands verður haldið 28.-29. maí næstkomandi. Námskeiðið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Laugardal, Engjaveg 6, 104 Reykjavík, 3.hæð salur C og á Tennisvöllum Víkings, Traðarlandi 1, 108 Reykjavík. Kennarar á námskeiðinu eru tennisþjálfararnir Jón Axel Jónsson (s.659-7777) og Raj K. Bonifacius (s.820-0825). Lágmarksaldur á námskeiðið er 13 ára.

Dagskrá námskeiðs:

Laugardaginn, 28.maí, kl. 10-15 (ÍSÍ)

1. Grunnstigsnámskeið
2. kl.12 hlé – Hádegismatur
3. Grunnstigsnámskeið
4. Heimavinnu fyrir fimmtudaginn, 3.júní
Lesefni í Grunnstigsmöppu

Sunnudaginn, 29.maí, kl. 10 – 14 (ÍSÍ)
5. Grunnstigsnámskeið (áfram)
6. kl.12 hlé – Hádegismatur
7. 15 mínútur 2ja – 3ja manna kynning (viðfangsefni: eitt dag í tennisskóla)

Sunnudaginn, 29.maí, kl. 15 – 17 (Tennisvellir Víkings)

8. Verklegt nám inn á velli

Í framhaldi skrifa nemendur stutta ritgerð um eftirfarandi efni:

1. 3 valkostir (velja 2)
a. Hvað felst í fyrstu 5 kennslustundunum?
b. Hvað getur verið hættulegt í tenniskennslu og hvernig getum við komið í veg fyrir þessa áhættu sem kennarar?
c. Hvað kosti hefur það fyrir tenniskennara að vera skipulagður í kennslu?
2. Ritgerð
a. Má vera handskrifað eða í tölvutæku formi og send a ritgerd@tennis.is
b. 4 blaðsíður; 1,5 linubil
c. skiladagur 30.júní

Lesa frétt

Úrslit úr 4.Stórmóti TSÍ

Verðlaunahafar á 4.Stórmóti TSÍ

4.Stórmóti TSÍ lauk 9.maí síðasliðinn. Raj K. Bonifacius sigraði í meistaraflokki karla og Kristín Hannesdóttir í meistaraflokki kvenna. Óliver Adam Kristjánsson sigraði í 12 ára og yngri strákar og Heba Sólveig Heimisdóttir í 12 ára og yngri stelpur. Í 10 ára og yngri barna sigraði Ívan Kumar Bonifacius og í mini tennis sigraði Sofía Sóley Jónasdóttir.

Nánari úrslit má sjá hér fyrir neðan:

Lesa frétt

Ísland endaði í 7-8.sæti á Davis Cup

Íslenska karlalandsliðið endaði í 7.-8. sæti á Davis Cup

Ísland lauk þátttöku á Davis Cup í gær með 1-2 ósigri gegn Armeníu um 5.-6. sætið.

Jón Axel Jónsson spilaði fyrsta einliðaleikinn á móti Daniil Proskura og tapaði 1-6 0-6.

Í öðrum einliðaleiknum spilaði Arnar Sigurðsson á móti Torgom Asatryan. Arnar átti góðan leik og sigraði 6-0 6-4.

Staðan því 1-1 eftir einliðaleikina og því ljóst að tvíliðaleikurinn myndi skera úr um sigurinn. Andri og Arnar spiluðu á móti Khachatur Khachatryan og Daniil Proskura. Ísland byrjaði betur og vann fyrsta settið 6-2 en þá tóku Armenar til sinna ráða og unnu næstu tvö sett 3-6 og 1-6 og þar með leikinn. Ísland endaði því í 7.-8. sæti af 12 þjóðum.

Lokaniðurstaða í deildinni er:
1-2.=Moldavía, Tyrkland , 3-4=Makedónía, Svartfjallaland, 5-6.=Noregur, Armenía, 7-8.= Andorra, Ísland, 9-10.=Georgía, San Marínó, 11-12.= Malta, Albanía

Moldavía og Tyrkland fara því upp í 2.deild á næsta ári en Ísland verður áfram í 3.deild.

Lesa frétt

3-0 tap gegn gríðarsterku liði Moldavíu

Birkir mætti ofjarli sínum í dag

Íslenska karlalandsliðið tapaði 3-0 gegn gríðarsterku liði Moldavíu á Davis Cup í dag.

Allir leikmenn íslenska landsliðsins spiluðu í dag. Arnar Sigurðsson og Birkir Gunnarsson spiluðu einliðaleiki á móti númer 1 og 2 hjá Moldavíu. Andri Jónsson og Jón Axel Jónsson spiluðu tvíliðaleik á móti leikmönnum númer 1 og 2 hjá Moldavíu.

Arnar Sigurðsson spilaði fyrsta leikinn á móti næst sterkasta leikmanni Moldavíu Andrei Gorban sem er númer 641 á heimslistanum. Arnar átti mjög erfiðan leik þar sem Gorban fór á kostum og klúðraði varla bolta fyrr en í byrjun á seinna setti. Arnar spilaði virkilega vel í seinna settinu og var alls ekki langt frá því að snúa blaðinu við og koma leiknum í úrslitasett en það tókst ekki að þessu sinni. Lokatölur 6-0 og 6-4 fyrir Gorban.

Í öðrum leiknum tapaði Birkir Gunnarsson á móti sterkasta leikmanni Moldavíu Radu Albot 6-0 6-0 sem er númer 334 á heimslistanum og líklega næst sterkasti leikmaðurinn á öllu mótinu. Birkir átti góða takta en Albot var  hreinlega of góður fyrir hann.

Í tvíliðaleiknum töpuðu Jón Axel Jónsson og Andri Jónsson 6-2 6-2 gegn Gorban og Albot, en spiluðu þó mjög vel og óheppnir að næla sér ekki í fleiri lotur þar sem þeir voru vel inn í leiknum allan tímann.

Ísland mun því spila um 5.sætið á morgun gegn Armeníu. Moldavía mun hins vegar spila við Svartfjallaland um laust sæti í 2.deild.

Lesa frétt

Vegna Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva laugardagskvöldið 14.maí er keppni í ITN styrkleikaflokki tvíliða frestað til laugardagskvöldsins 21.maí.

Lesa frétt

Ísland sigraði Möltu 2-1 í dag

F.v. Jón Axel, Andri, Arnar og Birkir

Ísland spilaði sinn fyrsta leik á Davis Cup í dag og sigraði Möltu 2-1. Arnar Sigurðsson spilaði fyrsta leikinn fyrir Ísland og sigraði Bradley Callus 6-1 og 6-1. Andri Jónsson spilaði næsta leik og tapaði fyrir Matthew Asciak (nr. 1766 í heiminum) 2-6 1-6. Staðan því 1-1 og ljóst að tvíliðaleikurinn væri úrslitaleikur. Arnar og Andri sigruðu í spennandi og jöfnum leik þá Matthew Asciak og Mark Gatt 7-6(6) og 6-4 eftir tvær langar rigningarpásur.

Á morgun mætir Ísland Moldavíu en þeir eru með mjög sterkt lið og unnu Möltu sannfærandi 3-0. Allir leikmenn Moldavíu eru á heimslistanum, þeirra besti leikmaður er númer 334 í heiminum, næstbesti er númer 641 og þriðji besti númer 880. Það er því ljóst að Ísland þarf að eiga góðan dag á morgun til að fara með sigur af hólmi.

Lesa frétt

Raj sigraði örugglega á 4.Stórmóti TSÍ

Feðgarnir Rafn Kumar og Raj

4.Stórmóti TSÍ lauk í gær með úrslitaleik í einliðaleik ITN Styrkleikaflokks. Raj Bonifacius úr Tennisdeild Víkings lagði son sinn Rafn Kumar Bonifacius einnig úr Tennisdeild Víkings örugglega 6-1 og 6-2 í úrslitaleiknum. Þetta er í annað skiptið á árinu sem feðgarnir mætast í úrslitum á stórmóti TSÍ og hefur Raj haft betur í bæði skiptin. Þess má þó geta að enginn af leikmönnum karlalandsliðsins var með að þessu sinni þar sem þeir eru staddir í Makedóníu að keppa á Davis Cup.

Í þriðja sæti varð Vladimir Ristic Tennisfélagi Kópavogs eftir að hafa lagt Sverri Bartolozzi Tennisfélagi Álftaness 6-4 og 6-3.

Lesa frétt