4. Stórmót TSÍ – 7.-9.maí 2011

4.Stórmót TSÍ verður haldið 7.-9.maí næstkomandi í Tennishöllinni Kópavogi.

Mótinu er skipt í eftirfarandi fjóra flokka:

  • “Mini Tennis” fyrir þá yngstu (fæddir árið 2001 eða yngri) – Mánudaginn 9.maí
  • Barnaflokkar (10 & 12 ára og yngri)
  • ITN Styrkleikaflokkur sem er opinn fyrir öllum
  • ITN Tvíliðaleikur (styrkleikaskipt) – Laugardaginn 14.maí 2011

Markmið styrkleikakerfisins er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og númerið er svo uppfært eftir mótið.

Míni Tennis keppni fer fram mánudaginn 9.maí frá kl.14.30-16.00.
Tvíliðaleikskeppnin fer fram laugardaginn 14.maí.

Mótsgjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis;  1.500 kr./fædd  f. 1995 og yngri;  2.500 kr./aðra
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1995 og yngri;  1.500 kr./aðra

ATH – Síðasti skráningar (og afskráningar!) dagur fyrir mótið er miðvikudaginn, 4.maí, kl.18.00

Verðlaunaafhending fer fram  eftir úrslitaleik ITN styrkleikaflokksins mánudaginn 9.maí

Mótskrá: Tilbúin 6.maí
Mótstjóri: Raj K. Bonifacius, s.820-0825   tennis@tennis.is

Skráningu í mótið er lokið.

Lesa frétt

Andri Íslandsmeistari innanhúss – Hjördís Rósa sexfaldur Íslandsmeistari innanhúss

Verðlaunahafar í meistaraflokki karla. F.v. Jón Axel, Birkir, Andri og Vladimir

Íslandsmóti innanhúss lauk síðastliðin  miðvikudag með úrslitaleik í meistaraflokki karla. Í úrslitaleiknum mættust Andri Jónsson úr Badmintonfélagi Hafnafjarðar og Birkir Gunnarsson úr Tennisfélagi Kópavogs. Andri sigraði 6-4 og 6-4 og landaði þar með sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli innanhúss í meistaraflokki.

Hjördís Rósa Guðmundsdóttir náði þeim merka áfanga að vera fjórfaldur íslandsmeistari í einliðaleik, þ.e. í U14, U16, U18 og meistaraflokki kvenna. Auk þess var hún tvöfaldur íslandsmeistari í tvíliðaleik, þ.e. í U14 ára og meistaraflokki kvenna. Stórglæsilegur árangur hjá þessari ungu og efnilegu stelpu.

Önnur úrslit úr mótinu má sjá hér.

Íslandsmeistarar innanhúss 2011

Ívan Kumar Bonifacius – Mini tennis og U10 strákar
Sofia Sóley Jónasdóttir – U10 stelpur
Óliver Adam Krisjánsson – U12 strákar
Anna Soffía Grönholm – U12 stelpur
Sverrir Bartalozzi – U14 strákar
Hjördís Rósa Guðmundsdóttir – U14, U16, U18  og meistaraflokkur kvenna
Hinrik Helgason – U16 og U18 strákar
Andri Jónsson – meistaraflokkur kvenna
Davíð Elí Halldórsson – 30 ára og eldri karlar
Rut Steinsen – 30 og 40 ára og eldri konur
Ólafur Helgi Jónsson – 40 ára og eldri karlar

Tvíliðaleikur meistaraflokkur kvenna – Hjördís Rósa Guðmundsdóttir og Anna Soffía Grönholm

Lesa frétt

Andri og Birkir mætast í úrslitum kl 16:30 í dag

Birkir og Andri mætast í úrslitum

Íslandsmóti innanhúss lýkur í dag með úrslitaleik í meistaraflokki karla kl 16:30. Þar mætast í úrslitum Andri Jónsson úr Badmintonfélagi Hafnafjarðar og Birkir Gunnarsson úr Tennisfélagi Kópavogs. Andri sigraði Davíð Elí Halldórsson Tennisfélagi Kópavogs í undanúrslitum 6-0 og 6-1. Birkir sigraði Jón Axel Jónsson UMFÁ í undanúrslitum 6-3 og 6-0.

Hjördís Rósa Guðmundsdóttir var íslandsmeistari innanhúss í meistaraflokki kvenna. Það vantaði okkar sterkustu keppendur í meistaraflokk kvenna þar sem báðar landsliðskonurnar Sandra Dís Kristjánsdóttir og Iris Staub eru búsettar erlendis og gátu ekki keppt á mótinu að þessu sinni. Einungis voru þrír keppendur í meistaraflokk kvenna og þar sem allar sigruðu alla þurfti að telja lotur til að skera úr um hver væri íslandsmeistari.

Hjördís Rósa er Íslandsmeistari innanhúss í einliðaleik kvenna

Úrslitin í meistaraflokki kvenna voru eftirfarandi:

Hjördís Rósa Guðmundsdóttir sigraði Rögnu Sigurðardóttir 9-5

Hera Björk Brynjarsdóttir sigraði Hjördísi 9-7

Ragna Sigurðardóttir sigraði Heru Björk Brynjarsdóttir 9-6

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður á föstudaginn 22.apríl kl 15:30 í Tennishöllinni Kópavogi.

Lesa frétt

23. ársþingi TSÍ lokið – Helgi Þór kosinn nýr formaður

Helgi Þór Jónasson er nýr formaður Tennissamband Íslands

23.ársþingi TSÍ lauk nú í kvöld um 21:30. Rakel Pétursdóttir sem hafði verið formaður Tennissambands Íslands í eitt ár gaf ekki kost á sér áfram í formannssætið.

Helgi Þór Jónasson var sjálfkjörinn nýr formaður Tennissambands Íslands en hann var meðstjórnandi í stjórninni á síðasta ári og í varastjórn árið áður. Hafsteinn Dan Kristjánsson gaf ekki kost á sér áfram eftir 5 ára stjórnarsetu og Ingólfur Hjörleifsson hætti eftir 4 ára stjórnarsetu. Gunnar Þór Finnbjörnsson var kosin áfram í stjórn. Ný í stjórn voru kosin Þrándur Arnþórsson sem var í varastjórn áður áður, Júlíana Jónsdóttir og Bragi Leifur Hauksson. Gunnar og Júlíana voru kosin til tveggja ára en Þrándur og Bragi til eins árs. Í varastjórn koma nýir inn Jón Axel Jónsson og Raj K. Bonifacius. Kosnir voru áfram í varastjórn Jónas Páll Björnsson og Skjöldur Vatnar Björnsson

Lesa frétt

Ársþing TSÍ er haldið í kvöld kl 18:30

Ársþing Tennissambands Íslands verður haldið í kvöld 19. apríl í Sal KSÍ í Laugardalnum á 3.hæð og hefst kl. 18:30.

Dagskrá:

1 Þingsetning kl. 18:30.
2 Kosnir fastir starfsmenn þingsins.
3 Kosnar fastar nefndir:
a) 3 menn í kjörbréfanefnd.
b) 3 menn í fjárhagsnefnd.
c) 3 menn í laga- og leikreglnanefnd.
d) 3 menn í alsherjarnefnd.
e) 3 menn í kjörnefnd.
4 Skýrsla stjórnar og fundargerð síðasta ársþings.
5 Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til samþykktar.
6 Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
7 Lagðar fram tillögur um laga- og leikreglnabreytingar ef fram koma.
8 Umræður um tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar.

Þinghlé

9 Nefndarálit um tillögur lögð fram og atkvæðagreiðslur um þær.
10 Önnur mál.
11 Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna reikninga og fulltrúa á íþróttaþing.
12 Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
13 Þingslit.

Kveðja, f.h. TSÍ_____________________
Rakel Pétursdóttir

Lesa frétt

Mótskrá – Íslandsmót innanhúss 14.-20.apríl 2011

Íslandsmót innanhúss hefst á morgun fimmtudaginn 14.apríl. Mótskrá fyrir mótið má sjá hér.
ATHUGIÐ að þetta er uppfærð mótskrá. Vegna skráningar og afskráningar í mótinu þá hafa orðið breytingar á nokkrum flokkum, sérstaklega meistaraflokki.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja.

Mótstjórar:
Andri Jónsson                 866-4578          andrijo84@hotmail.com
Jón Axel Jónsson           659-7777          jonaxeljonsson@hotmail.com

Lesa frétt

Íslandsmót innanhúss 14.-20.apríl 2011

Íslandsmót innanhúss í tennis verður haldið í Tennishöllinni Kópavogi 14.-20. apríl næstkomandi. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Einliðaleikur

  • Mini tennis 10 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 10 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 12 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 14 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 16 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 18 ára og yngri
  • Karla/Kvenna Meistaraflokkur
  • Karlar/Konur 30 ára +
  • Karlar/Konur 40ára +

Tvíliðaleikur

  • Strákar/Stelpur 12 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 14 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 16 ára og yngri
  • Strákar/Stelpur 18 ára og yngri
  • Karla/Kvenna Meistaraflokkur
  • Karlar/Konur 30 ára+
  • Karlar/Konur 40 ára+

Tvenndarleikur

  • Meistaraflokkur
  • Karlar/Konur 30 ára+
  • Karlar/Konur 40 ára+

Síðasti skráningardagur er 12.apríl kl 18:00. Mótskrá verður svo birt á hér á síðunni.

Eftir úrslitaleiki í meistaraflokki karla og kvenna lýkur verður verðlaunaafhending og veitingar.

Þátttökugjald:
Mini tennis flokkur: Einliðaleikur 1.000 kr.
Barnaflokkar: Einliðaleikur 2.000 kr. (mini tennis); 2.000 kr. (aðrir); Tvíliðaleikur 1.500 kr./mann
Aðrir flokkar: Einliðaleikur 3.000 kr; Tvíliða/Tvenndarleikur 2.000 kr./mann

Mótsgjald skal greiða mótstjórum fyrir fyrsta leik.

Mótstjórar:
Andri Jónsson                 866-4578          andrijo84@hotmail.com
Jón Axel Jónsson           659-7777          jonaxeljonsson@hotmail.com

Skráningu í mótið er lokið.

Lesa frétt

Ársþing TSÍ verður haldið 19.apríl 2011 kl 18:30

Ársþing Tennissambands Íslands verður haldið þriðjudagskvöldið 19. apríl næstkomandi í Sal KSÍ í Laugardalnum á 3.hæð og hefst kl. 18:30.

Dagskrá:

1 Þingsetning kl. 18:30.
2 Kosnir fastir starfsmenn þingsins.
3 Kosnar fastar nefndir:
a) 3 menn í kjörbréfanefnd.
b) 3 menn í fjárhagsnefnd.
c) 3 menn í laga- og leikreglnanefnd.
d) 3 menn í alsherjarnefnd.
e) 3 menn í kjörnefnd.
4 Skýrsla stjórnar og fundargerð síðasta ársþings.
5 Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til samþykktar.
6 Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár.
7 Lagðar fram tillögur um laga- og leikreglnabreytingar ef fram koma.
8 Umræður um tillögur og önnur mál sem borist hafa til stjórnar.

Þinghlé

9 Nefndarálit um tillögur lögð fram og atkvæðagreiðslur um þær.
10 Önnur mál.
11 Kosning stjórnar, varastjórnar, skoðunarmanna reikninga og fulltrúa á íþróttaþing.
12 Þingfundargerðir lesnar og staðfestar.
13 Þingslit.

Kveðja, f.h. TSÍ_____________________
Rakel Pétursdóttir

Lesa frétt

Andri Jónsson sigraði á 3.Stórmóti TSÍ

Á myndinni má sjá Jón Axel (3.sæti), Andra (1.sæti) og Birki (2.sæti) auk Arnars sem tók ekki þátt að þessu sinni.

3.Stórmóti TSÍ lauk í gærdag. Í úrslitaleik ITN styrkleikaflokki áttust við Andri Jónsson úr Badmintonfélagi Hafnafjarðar og Birkir Gunnarsson úr Tennisfélagi Kópavogs. Andri sigraði Birki 6-4 og 6-0. Í þriðja sæti lenti Jón Axel Jónsson úr Ungmennafélagi Álftanes. Jón Axel sigraði Mouhajir Tatou 6-1 og 6-3 í leiknum um þriðja sætið.
Í tvíliðaleik ITN styrkleikaflokki sigruðu feðgarnir Raj K. Bonifacius og Rafn Kumar Bonifacius þá Ástmund Kolbeinsson og Hinrik Helgason 9-1.

Í 12 ára og yngri stelpna sigraði Anna Soffia Grönhölm í fyrsta sæti og í 12 ára og yngri stráka sigraði Tómas Hrói Viðarsson. Í 10 ára og yngri stráka sigraði Ívan Kumar Bonifacius og í 10 ára og yngri stelpna sigraði Sofia Sóley Jónasdóttir. Ívan Kumar Bonifacius sigraði mini tennis mótið.

Önnur úrslit má sjá hér fyrir neðan:

Lesa frétt

Mótskrá – 3.Stórmót TSÍ 2.-4.apríl 2011

3.Stórmót TSÍ hefst á morgun, laugardaginn, 2.apríl og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi. Keppt er í einliða- og tvíliðaleik í ITN styrkleikaflokki og barnaflokkum 10 ára og yngri og 12 ára og yngri.

Mótskrár má sjá hér fyrir neðan:

Mini tennismótið fyrir 10 ára og yngri (krakkar fædd 2001 og síðar) verður á mánudaginn, 4.apríl og hefst kl 14:30.

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikinn í einliðaleik sem hefst kl 16:00 á mánudaginn.

Ath. Leikmenn eru minntir á að mæta tímalega fyrir leikinn sinn. Farið verður eftir eftirfarandi reglum TSÍ:
■ 1 mínúta of seint = tapar 1 lotu
■ 6 mínútum of seint = tapar 2 lotum
■ 11 mínútum of seint = tapar 3 lotum
■ 16 mínútum of seint = tapar leiknum

Það verður engin undantekning varðandi þessar reglur og hvetur mótstjórinn ykkur til að undirbúa ykkur fyrir leikinn með því að mæta fyrr og skokka/teygja.

Mótstjóri er Raj K. Bonifacius sími: 820-0825, netfang: raj@tennis.is

Lesa frétt