Árshátíð TSÍ – Arnar og Sandra Dís valin tennisspilarar ársins

Sandra Dís og Arnar - Tennisspilarar ársins 2010

Árshátíð TSÍ fór fram síðastliðin föstudag á Café Easy í Laugardalnum og tókst með eindæmum vel. Þetta er annað árið í röð sem árshátíð TSÍ er haldin og því má segja að komin sé hefð á hana.

Arnar Sigurðsson úr Tennisfélagi Kópavogs var valin besti tennismaður ársins 2010. Þetta er í fjórtánda skipti sem Arnar hlýtur tilnefninguna og jafnoft hefur hann verið Íslandsmeistari utanhúss eða allt frá árinu 1997. Arnar var tvöfaldur Íslandsmeistari utanhúss á árinu í einliða og tvíliða.

Sandra Dís Kristjánsdóttir einnig úr Tennisfélagi Kópavogs var valin besta tenniskona ársins 2010. Þetta er í annað skiptið sem hún hlýtur þessa tilnefningu en hún hlaut hana einnig árið 2008. Sandra Dís varð þrefaldur Íslandsmeistari utanhúss á árinu og er þar með níundi tennisspilarinn til að ná þeim merka áfanga. Auk þess var hún tvöfaldur Íslandsmeistari innanhúss í einliða og tvíliða. Sandra Dís var ekki á staðnum til að taka við verðlaunum sínum þar sem hún er erlendis í námi og spilar fyrir bandarískt háskólalið.

Lesa frétt

ITN Styrkleikaflokkur tvíliða, U10 og U14 ára stelpur spilað á laugardaginn

Áframhald verður á 5.Stórmóti TSÍ næstkomandi laugardag 27.nóvember. Þá verður keppt í ITN Styrkleikaflokki tvíliða, U10 ára stelpur og U14 ára stelpur. Mótskrá má nálgast hér.

Lesa frétt

Mótskrá fyrir 5.Stórmót TSÍ 2010

5. Stórmót TSÍ hefst á laugardaginn, 20.nóvember og verður keppt í Tennishöllinni Kópavogi.

Keppt er í fjórum flokkum:

  • Mini tennis fyrir þá yngstu (fædd árið 2000 eða seinna)
  • Barnaflokkar (10, 12, 14 ára og yngri ) – keppt verður í riðlum í hverjum flokki fyrir sig
  • ITN Styrkleikaflokkur einliða sem er opinn fyrir alla
  • ITN Styrkleikaflokkur tvíliða sem er opinn fyrir alla

Mótskrá má sjá hér fyrir alla flokka

Keppt verður í mini tennis mánudaginn 22.nóvember kl 14:30.

ATHUGIÐ! Vegna gríðarlegrar skráningar í mótinu hefur U10 ára stelpur flokkurinn verið færður til 27.nóv 12:30. Auk þess hefur U14 ára stelpur flokkurinn verið færður til laugardagsins 27.nóv. Nákvæmari tímasetning leikja fyrir U14 stelpur kemur inn sunnudaginn 21.nóvember.

Tvíliðaleiks-mótskrá kemur upp Sunnudaginn 21.nóvember.

Verðlaunaafhending og pizzapartý verður eftir úrslitaleikina í ITN einliða sem byrja kl 16 á mánudaginn 22.nóvember.

Mótstjóri er Jón Axel Jónsson s. 659-7777 netfang; jonaxeljonsson@hotmail.com

Lesa frétt

Árshátíð TSÍ 26.nóvember 2010

Árshátíð Tennissamband Íslands verður haldin föstudaginn 26.nóvember kl 18:00 í Veitingasal ÍSÍ, Engjavegi 6. Boðið verður upp á villisveppasúpu með rjómatopp i í forrétt. Í aðalrétt er gljáð kjúklingabringa með ofnbökuðu rótargrænmeti og Rösti kartöflum. Í eftirrétt er súkkulaði brownies með ís og rjóma. Maturinn verður borinn á borð kl 19:30 og er húsið opið til miðnættis. Ýmislegt skemmtilegt verður á dagskrá og verða bestu tennisspilarar árið 2010 heiðraðir. Aldurstakmark er 16.ára.

Miðinn kostar 3.300 kr. Hægt er að skrá sig í Tennishöllinni eða með því að hringja niðrí Tennishöll s. 564-4050. Síðasti skráningar- og (afskráningar)dagur til að skrá sig er 25.nóvember kl 24:00. Greitt er við innganginn í Veitingasal ÍSÍ. ATHUGIÐ að skráning er bindandi þ.a. ef fólk hættir við verður það að afskrá sig fyrir 26.nóvember kl 12:00 annars mun það fá sendan reikning fyrir miðanum.

Tennisfólk fjölmennum á árshátíðina og skemmtum okkur saman. Allir velkomnir.

Lesa frétt

5.Stórmót TSÍ 20.-22. og 27.nóvember 2010

5. Stórmót TSÍ verður haldið 20.-22. og 27. nóvember næstkomandi í Tennishöllinni í Kópavogi. Keppt verður í fjórum flokkum:

  • Mini tennis fyrir þá yngstu (fædd árið 2000 eða seinna)
  • Barnaflokkar (10, 12, 14 ára og yngri ) – keppt verður í riðlum í hverjum flokki fyrir sig
  • ITN Styrkleikaflokkur einliða sem er opinn fyrir alla
  • ITN Styrkleikaflokkur tvíliða sem er opinn fyrir alla

ATHUGIÐ að keppt verður í öllum flokkum 20.-22.nóvember nema tvíliðaleik þar sem verður keppt laugardagskvöldið 27.nóvember kl 20:30 – 24:00.

Markmið með ITN styrkleikaflokknum er að allir byrja að keppa við jafnsterkan andstæðing og svo verður mótið erfiðara með hverri umferð. Allir nýir þátttakendur fá ITN númer miðað við mat mótstjórans og svo verður númerið uppfært eftir mótið.

Síðasti skráningar (og afskráningar!!) dagur fyrir mótið er miðvikudaginn 17.nóvember kl 18:00.

Verðlaunaafhending fer fram strax eftir úrslitaleik í ITN styrkleikaflokki einliða mánudaginn 22.nóvember.

Mótskrá: Tilbúin 19.nóvember og hægt verður að nálgast hana á þessari síðu og tfk.is.
Mótstjóri: Jón Axel Jónsson, s. 659-7777, netfang: jonaxeljonsson@hotmail.com

Þátttökugjald:
Einliðaleikur – 1.000 kr./mini tennis/10 ára ; 1.500 kr./fædd f. 1992 og yngri; 2.500 kr./aðrir
Tvíliðaleikur – 1.000 kr./f. 1992 og yngri; 1.500 kr./aðrir

Auglýsingu mótsins má sjá hér.

Búið er að loka fyrir skráningu.

Lesa frétt

Hástökkvarar og leikjahæstu leikmenn ITN styrkleikalista TSÍ

Leikjahæsti tennisspilari ITN styrkleikalista TSÍ - Hinrik Helgason má sjá fyrir miðju á myndinni

Hástökkvari ITN Styrkleikalista TSÍ - Dagbjartur Helgi Guðmundsson t.v. á myndinni

ITN styrkleikalisti TSÍ hefur verið uppfærður eftir 4.stórmót TSÍ sem var haldið síðustu helgi og má sjá uppfærðan lista hér. Hástökkvari listans er Dagbjartur Helgi Guðmundsson sem fór upp um 46 sæti eða frá því að vera í 244.sæti í 198.sæti.  Hinrik Helgason er leikjahæsti leikmaður ITN styrkleikalistans og hefur spilað 107 leiki frá því að listinn var tekinn í notkun fyrir þremur árum.

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista yfir hástökkvara frá 15.ágúst síðastliðnum.

Nr. Nafn Stökk um sæti ITN
1 Dagbjartur Helgi Guðmundsson 46 9,889
2 Ragna Sigurðardóttir 35 8,750
3 Arnaldur Orri Gunnarsson 29 9,657
4 Kári Hrafn Ágústsson 14 9,780
5 Anna Soffía Grönholm 7 9,608
6 Hera Björk Brynjarsdóttir 7 9,676
7 Melkorka Ingibjörg Pálsdóttir 6 10,006
8 Daníel Vilberg Ævarsson 4 10,054
9 Páll Þórhallsson 3 8,105
10 Eysteinn Hrafnkelsson 3 10,097

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá topp 10 lista yfir þá leikmenn sem hafa keppt flesta leiki frá því að ITN styrkleikalisti TSÍ var tekinn í notkun fyrir u.þ.b. þremur árum eða í september 2007.

Nr. Nafn Kepptir leikir ITN
1 Hinrik Helgason 107 5,963
2 Hjördís Rósa Guðmundsdóttir 96 8,578
3 Rafn Kumar Bonifacius 84 4,310
4 Vladimir Ristic 83 6,566
5 Óskar Örn Scheving 79 8,901
6 Birkir Gunnarsson 78 3,154
7 Hinrik Snær Guðmundsson 79 8,449
8 Bjarki Sveinsson 63 8,275
9 Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 62 9,876
10 Eirdís Heidur Chen Ragnarsdóttir 62 6,226

Lesa frétt